Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

70 GETNADAR- OG Getnaðarvarnir eru tæki, lyf eða aðferðir sem draga úr líkum á að egg frjóvgist - það er að segja að koma í veg fyrir að þau sem eru með leg geti orðið ófrísk. Það eru til margar mismunandi leiðir og það sem hentar getur verið ólíkt milli einstaklinga. Hægt er að fá getnaðarvarnir með og án hormónalyfja. • Getnaðarvarnir án hormóna: Smokkur, koparlykkja og hetta. • Getnaðarvarnir með hormónum: Samsett pilla, minipilla, hringur, stafur, plástur, sprauta og hormónalykkja. TILLI GEFUR GÓD RÁD KYNSJÚKDÓMAVARNIR Smokkur er er eina getnaðarvörnin sem ver bæði gegn þungun og kynsjúkdómum. Honum er rúllað á typpið og líka þarf að nota smokk ef um er að ræða kynlífshjálpartæki. Töfrateppi, stundum kallað munnhlíf, er einnig góð vörn gegn kynsjúkdómum. Það er einnota latexdúkur eða smokkur klipptur í sundur og lagt yfir píku eða endaþarmsop á meðan munnmök standa yfir. - - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=