69 RANGAR FORSENDUR Ummæli unglinga sem gerðu það á röngum forsendum: • „Ég þorði ekki að segja nei.“ • „Mér fannst kominn tími til að prófa þetta.“ • „Mér sýndist allir aðrir vera að gera það.“ • „Ég vildi byrja með stráknum og þetta var eina leiðin.“ • „Vinir mínir voru farnir að kalla mig munkinn.“ • „Ég gat ekki hugsað mér að vera hreinn sveinn þegar ég byrjaði í menntó.“ • „Vinkona mín sagði að þetta væri það besta í heimi.“ • „Kærastan mín kvartaði yfir því að við værum ekki alvöru par.“ • „Mér leið svo illa og ég hélt að þetta myndi breyta öllu.“ • „Ég var svo hrædd um að hún hætti með mér á föstu.“ SNÍPURINN Það eru mun meiri líkur á að munnmök og gælur við píku og sníp veiti fullnægingu heldur en samfarir einar saman. BRÁTT SÁDLÁT ... Sum sem eru með typpi upplifa að sáðlát gerist fyrr en þau vilja í kynlífi. Þetta er algengt, sérstaklega þegar fólk er spennt, stressað eða óöruggt. Besta ráðið við of bráðu sáðláti er að slaka á og gefa sér góðan tíma. Að einbeita sér að upplifuninni frekar en frammistöðunni. Í þessu tilfelli, eins og fjölmörgum öðrum, eru afslöppun og traust lykilatriði. HAFDU Í HUGA Það sem hefur mest áhrif á upplifunina er ekki endilega hvort þetta er fyrsta skiptið – heldur hvernig aðstæðurnar eru. • Er samþykki skýrt og gagnkvæmt? • Er traust og virðing til staðar? • Líður báðum aðilum vel? Fyrsta reynsla af kynlífi þarf ekki að vera „fullkomin“. Það sem skiptir mestu máli er að virða eigin mörk og læra af reynslunni. - - Hér eru dæmi um spurningar sem geta verið gagnlegar að velta fyrir sér. Það þarf ekki að hafa svör við öllu. En spurningarnar geta hjálpað til við að átta sig á eigin mörkum og líðan. Ekki láta aðra taka ákvörðun fyrir þig. 1. Þekki ég líkama minn og veit hvað mér finnst gott og líður vel með? 2. Finn ég fyrir löngun eða er ég frekar að fylgja væntingum annarra? 3. Getum við talað saman í einlægni um hvernig okkur líður? Um tilfinningar, mörk og væntingar? 4. Líður mér vel í nánd, eins og við að snerta, knúsa og hlæja saman? 5. Er ég að gera þetta fyrir mig? 6. Veit ég eitthvað um kynsjúkdóma og hvernig má draga úr áhættu á þeim? 7. Veit ég hvernig getnaðarvarnir virka og hvað gæti gerst ef þær bregðast? PÍNAR FORSENDUR Það er eðlilegt að vera ekki viss um allt. Það mikilvægasta er að geta: - sagt já þegar það er vilji til staðar - sagt nei þegar eitthvað passar ekki Þetta snýst um tilfinningar og mörk og því á ákvörðunin alltaf að vera á eigin forsendum.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=