Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

68 FYRSTA SKIPTID Það er enginn " RÉTTUR TÍMI" sem gildir fyrir alla. Fyrsta reynsla af kynlífi getur verið mjög mismunandi. Sum eru forvitin snemma, önnur vilja bíða – og allt þar á milli er eðlilegt. HVERNIG VERÐUR ÞAÐ? HVENÆR ER RÉTTI TÍMINN? HVERJUM ER HÆGT AÐ TREYSTA? Að hleypa annarri manneskju svona nálægt sér – líkamlega og tilfinningalega – getur verið stórt skref. Hvað þarf til að reynslan verði jákvæð, örugg og á eigin forsendum? HVAÐ FINNST ÞÉR? • að ást eða hrifning sé milli aðila • að sambandið hafi staðið yfir í minnst þrjá mánuði • að samskipti séu opin og hægt sé að tala um langanir og mörk • að aðilar séu tilbúnir til að ala upp þau börn sem gætu orðið til • að trúnaður og traust séu til staðar • að aðilar séu allsgáðir • að aðilar þekki líkama hvors annars • að aðilar kunni að vekja losta og unað hvor hjá öðrum • að komið sé í veg fyrir getnað • að smokkar séu til staðar og notaðir rétt • að þú þekkir vel líkama þinn og kynfæri • að kynhvötin sé til staðar og löngunin til samfara • að aðstæður séu öruggar og góður tími sé til stefnu • að þú hafir rætt áform þín við foreldri eða forsjáraðila UPPLIFUNIN Rannsóknir sýna að fyrsta kynlífsreynsla ungmenna getur verið mjög ólík. Fyrir sum er hún jákvæð á meðan önnur upplifa óöryggi, pressu eða vonbrigði – og mörg finna fyrir blöndu af þessu. Í rannsóknum kemur fram að væntingar standast ekki alltaf og upplifunin getur því orðið vonbrigði. Sum upplifa stress eða klaufaskap og eiga erfitt með að tengjast eigin tilfinningum í augnablikinu. Önnur lýsa að þau hafi verið óörugg eða feimin og að þau hafi ekki fengið neitt út úr þessu enda fundið fyrir þrýstingi eða þörf til að „drífa sig“, til dæmis vegna þess að þau upplifðu að „allir aðrir“ séu búin að prófa. Mikilvægt er að hafa í huga að fólk upplifir þetta á ólíkan hátt, óháð líkama eða kyni. Eftir á getur sumum liðið eins og þau hefðu viljað gera hlutina öðruvísi – eða að þau hafi einfaldlega ekki verið tilbúin. Hvað finnst þér skipta máli fyrir FYRSTA SKIPTIÐ? - Sum telja ákveðna hluti mjög mikilvæga en það sem skiptir mestu máli er að þú takir upplýsta ákvörðun á eigin forsendum. FYRSTU SAMFARIRNAR?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=