67 Margrét fékk fullnægingu í fyrsta skiptið með sjálfsfróun. Hún hafði reyndar oft fundið fyrir smá hita og fiðringi í píkunni og leikið sér við snípinn og jafnvel stungið fingrum inn í leggangaopið. En hún hafði ekkert staldrað lengi við þessar æfingar framan af því snípurinn var svo viðkvæmur og óþægilegt að koma við hann – eiginlega of næmur. Arnar er hommi og gerði sér grein fyrir því fyrir löngu en kom ekki út úr skápnum fyrr en í fyrra. Arnar varð snemma kynþroska og var farinn að fróa sér til nokkurrar ánægju um 13 ára aldur. Hann segist þó ekki hafa upplifað alvöru sælu fyrr en hann var með strák í fyrsta skiptið. Gefum Arnari orðið. ARNAR NAUT SÍN FYRST MED STRÁK ... MARGRÉT LÝSIR MAGNADRI SJÁLFSFRÓUN ... MARGRÉT: „Ég lokaði mig inni í herbergi og setti tónlist á. Svo lokaði ég bara augunum og strauk brjóstin, lærin og fór með alla athyglina á staðina sem ég var að snerta. Ég strauk snípinn laust og hægt þar til mér fannst ég finna hann þrútna og ég var orðin ótrúlega uppspennt. Svo strauk ég snípinn áfram og mér fannst ég vera að springa. Og svo sprakk ég eða eitthvað inni í mér sem þeyttist út um allt og ég fékk sæluhroll og fann síðan fyrir djúpri slökun.“ ARNAR: „Ég var búinn að reyna að vera með stelpu. Mér líkaði það ekkert illa en ekkert vel heldur. Ég hafði aldrei verið með strák en var búinn að horfa á hommaklám og hafði séð alls konar í bíómyndum og þáttum. Ég hélt einhvern veginn að allir hommar þyrftu að vera „top“ eða „bottom“ og að ef ég ætlaði að vera með einhverjum þyrfti ég að stunda endaþarmsmök. Ég kunni ekkert að „douche-a“, eða þú veist hreinsa rassinn og var rosalega stressaður að sofa hjá stráki í fyrsta sinn. Síðan kynntist ég Villa. Við urðum frekar góðir vinir, og meira en það. Ég fann hvað ég var skotinn í honum og hugsaði um hann þegar ég fróaði mér en var svo stressaður um að vita ekki hvernig ég ætti að stunda kynlíf að ég þorði aldrei að reyna við hann. Eitt kvöldið þegar við vorum að hanga saman heima hjá honum sagði hann mér að hann væri hommi og að hann væri skotinn í mér. Ég varð bæði ótrúlega spenntur en einnig hræddur. Ég ætlaði að hlaupa út en hætti við og sagði honum að mér liði eins. Við fórum síðan að kyssast en ekkert meira gerðist það kvöldið. Áður en við hittumst næst var ég búinn að peppa mig og var tilbúinn að sofa hjá honum. Ég var samt svo stressaður. Þegar ég síðan spurði Villa hvort hann væri top eða bottom þá sagðist hann ekki vera bara annaðhvort eða. Hann hafði meiri reynslu en ég og við ræddum síðan að maður þarf ekki að vera í ákveðnu hlutverki alltaf og líka að það vilja ekkert endilega allir hommar stunda endaþarmsmök. Ég slakaði mikið á við að heyra þetta. Við fórum mjög hægt og prófuðum alls konar saman og ég veit núna að allar þessar hugmyndir um kynlíf sem birtast í klámi og á skjánum eru ekki endilega eins og raunveruleikinn.“ - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=