66 „Sumir af vinum mínum hafa sofið hjá og að minnsta kosti tveir eða þrír monta sig af því að vera „góðir í rúminu“. Ég hef ekki sofið hjá og ég er skíthræddur um að ég sé lélegur í því. Hvernig get ég verið viss um að ég standi mig vel þegar það kemur loksins að því?“ GUNNI Kæri Gunni. Hugtakið „góður í rúminu“ hefur enga merkingu, vegna þess að það er ekki það sama sem hentar öllum. Það sem einum finnst meiriháttar upplifun í kynlífi finnst öðrum kannski vont eða bara hundleiðinlegt. Þegar þú kynnist manneskjunni sem þú vilt vera með Viktor segist vera vanur að runka sér þrisvar til fjórum sinnum í viku. Hann er nýbyrjaður á föstu með stelpu sem heitir Lísa og er mjög hrifin af henni. Hann segir þau hafa gert ýmislegt skemmtilegt saman en þau hafa ekki haft samfarir. Gefum Viktori orðið. VIKTOR LÍTUR Á SJÁLFSFRÓUN SEM LOSUN ... VIKTOR: „Ég lít á sjálfsfróun sem nokkurs konar losun … það er auðvitað mögnuð tilfinning að fá’ða. Ég myndi líkja tilfinningunni við litla hitabombu sem byrjar í typpinu og hríslast út um kroppinn. Fullnæging varir í svona fimm til tíu sekúndur. Á eftir er maður allur slakur og fínn. Það er auðvitað allt öðruvísi að vera með stelpu. Við Lísa erum enn að læra hvort á annað en það er rosalega spennandi og allt öðruvísi vellíðan sem fylgir því að kela.“ SJÁLFSFRÓUN lærið þið smátt og smátt á hvort annað og trúið hvort öðru fyrir því sem ykkur þykir skemmtilegt og gott. Þannig verðið þið góð saman en þið skuluð vara ykkur á að miða ykkur við einhvern utanaðkomandi skala. Það er bara rugl. Kynfræðingurinn
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=