Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

HIN HLIDIN Klámleikarar eru stundum neydd til að leika í klámi og fyrrverandi klámleikarar hafa sagt frá slæmri meðferð, misnotkun eða þrýstingi í starfi. Einnig hefur verið bent á að ofbeldisfullt klámefni hafi aukist á netinu. Slíkt efni getur haft áhrif á hugmyndir fólks um kynlíf og sambönd. Á Íslandi er bannað að sýna eða selja klámefni fyrir einstaklinga yngri en 18 ára. ÁHRIF KLÁMS (KLÁMVÆDING) Klámnotkun getur haft neikvæð áhrif á einstaklinga. Svo sem: • áhyggjur af líkamlegu útliti og útliti kynfæra. • óraunhæfar hugmyndir og áhyggjur varðandi frammistöðu í kynlífi. • neikvæð áhrif á kynlíf með bólfélaga þegar hugmyndir úr klámi eru yfirfærðar á eigið kynlíf án þess að fá samþykki og virða mörk hins aðilans. • óheilbrigð klámnotkun, til dæmis þegar klámnotkun er farin að hafa neikvæð áhrif á félagsleg samskipti, kynlíf, skóla og fleira. Finnst þér að klám hafi slæm áhrif á þig eða samband þitt við aðra? Þá er gott að taka sér hlé eða hætta alveg að horfa á klám og þjálfa frekar upp ímyndunaraflið. ALLT KYNLÍF SEM ER ÁN SAMPYKKIS PEIRRA SEM TAKA PÁTT ER OFBELDI – LÖGBROT NEI PÝDIR NEI! - - - KYNFERDISLEG ATHÖFN, S.S. SAMFARIR EDA MUNNMÖK, VID EINSTAKLING SEM EKKI SAMPYKKIR ER NAUDGUN. - - - - NEI - - NAUDGUN ER EKKI KYNLÍF – NAUDGUN ER OFBELDI það er ekki til afsökun fyrir því. viðkomandi bauð ekki upp á það með eggjandi framkomu eða klæðaburði. einstaklingurinn vildi það ekki innst inni. það skiptir ekki máli hverjar aðstæðurnar voru. það skiptir ekki máli á hvaða stigi málsins viðkomandi ákvað að hætta við. það er sama hvað þú hélst að einstaklingurinn hefði gefið í skyn. það er engin afsökun að þú hafir ekki ráðið við þig. það er engin afsökun að einhver annar hafi byrjað að beita ofbeldi og manað þig til að taka þátt. þetta er ekki eðlilegt, þetta er ofbeldi og þetta er glæpur. viðkomandi gleymir þessu aldrei. ölvun eða áhrif annarra vímuefna er engin afsökun. að byrla einhverjum lyf eða áfengi til að geta stjórnað aðstæðum eða notfært sér viðkomandi kynferðislega er ofbeldi og glæpur. nauðgun er kynferðisofbeldi og refsivert brot. NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI 65

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=