Kynlíf - ungt fólk, líkami, kynþroski, samskipti, mörk

KYNLÍF Í BÍÓ DÆMI UM BÍÓMYNDAKYNLÍF: • þau hittast í lyftunni og horfast í augu (4 sek. liðnar), • kyssast (10 sek. liðnar), • rífa hvort annað úr fötunum (14 sek. liðnar), • hann lyftir henni upp og setur typpið inn (21 sek. liðin), • hún engist um af unaði, • þau hamast inn og út, • þau fá bæði fullnægingu á sama tíma (30 sek. liðnar). • fullkomið kynlíf á 1⁄2 mínútu … eða hvað? HVERNIG ERU KYNLÍFSSENUR Í BÍÓMYNDUM GERDAR? Klám er ögrandi framsetning á kynlífi án ástar, blíðu eða ábyrgðar, oftast framleitt til að græða peninga. Klám getur verið myndefni, texti, hljóðefni eða annað sem ætlað er að skapa kynferðislega örvun. Klám er ekki það sama og kynlíf. Klám er leikið efni þar sem klámleikarar fylgja HVAD ER KLÁM? Stór hluti fólks hefur einhvern tíma horft á klám. Ástæður geta verið margar, til dæmis forvitni, kynferðisleg örvun eða löngun til að fræðast um kynlíf. Mikilvægt er þó að hafa í huga að klám er ekki góð kynlífsfræðsla. Raunverulegt kynlíf byggist á samskiptum, trausti, jafnræði og samþykki. Í klámi birtast oft ýktar eða óraunhæfar hugmyndir um líkama, kynlíf og sambönd. Rannsóknir benda til þess að mikil klámneysla geti haft áhrif á væntingar fólks til kynlífs og sambanda og hjá sumum dregið úr kynferðislegri ánægju eða örvun í raunverulegum samskiptum. Klám er til í mörgum myndum og hvernig klám fólk horfir á segir ekki endilega neitt um kynhneigð þess. En það var engin ást, ekkert kelerí, enginn hlátur, ekkert káf og knús, enginn snípur, enginn vandræðagangur, engin ný uppgötvun, ekkert persónulegt. Fólkið grannt, ófatlað og hvítt. Ekkert var raunverulegt. KÖTT! AKSJÓN! Kynlífssenur í kvikmyndum líta oft mjög raunverulega út, en í raun eru þær vandlega skipulagðar og teknar upp eins og önnur atriði í kvikmynd. Sumir leikarar vilja ekki koma fram naktir eða leika kynlífsatriði. Þá eru stundum notaðir staðgenglar sem leika ákveðna hluta líkamans. Með klippingu og myndatökum er síðan látið líta út eins og allt sé sami leikarinn. Við upptökur eru líka notaðar ýmsar hlífar og hjálpartæki til að tryggja að kynfæri snertist ekki. Atriðin eru æfð og tekin upp í litlum skrefum, og stundum eru teknir upp aðeins ákveðnir líkamshlutar eða svipbrigði. Á mörgum tökustöðum er líka sérstakur starfsmaður sem kallast nándarstjóri. Hlutverk hans er að hjálpa leikurum að æfa atriðin og passa að öllum líði vel og að mörk þeirra séu virt. Þótt kynlífssenur í kvikmyndum líti út fyrir að vera mjög ástríðufullar eru þær í raun bara nákvæmlega skipulögð vinna fyrir myndavélina. handriti og fyrirmælum leikstjóra og oft er það gróft og ofbeldiskennt. Eitt af einkennum kláms er að samskipti einstaklinga eru lítil sem engin. Allir eru til í tuskið, hvenær og hvar sem er, með hverjum sem er. Í klámi líta fáir eðlilega út. Typpi og brjóst eru risastór, karlar vöðvastæltir og konur tágrannar og hárlausar. Typpi haldast stinn, píkur eru rennblautar tímunum saman og smokkar sjást varla. Enginn þreytist, finnur til eða verður vandræðalegur. - - HORFIR PÚ Á KLÁM? 64

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=