63 BULL OG VITLEYSA Við fáum oft alls konar hugmyndir um kynlíf áður en við kynnumst því sjálf. Sumar þeirra eru einfaldlega rangar – og geta ruglað fólk þegar það byrjar að velta kynlífi fyrir sér. Margar hugmyndir okkar byggjast á því sem við sjáum í kvikmyndum, þáttum, auglýsingum eða á netinu. Þar er kynlíf KYNLÍF ER EKKI KEPPNISÍPRÓTT HVERNIG ERU UPPLÝSINGARNAR SEM VID FÁUM UM KYNLÍF? UM KYNLÍF oft sýnt á ákveðinn hátt sem passar oft alls ekki við raunveruleikann. Til dæmis geta þau sem eru með typpi fengið þá hugmynd að þau þurfi alltaf að endast lengi í samförum eða vera mjög reynslumikil. Þau sem eru með píku geta aftur á móti fengið skilaboð um að þau eigi annaðhvort ekki að hafa mikla kynhvöt eða að þau eigi alltaf að vera tilbúin í kynlíf og fá fullnægingu. Slíkar hugmyndir geta skapað óþarfa pressu og óöryggi. Fjölmiðlar og klámefni sýna líka oft mjög skakka mynd af því hverjir stunda kynlíf. Til dæmis sést sjaldnar kynlíf eða nánd hjá fötluðu fólki, feitu fólki, lituðu fólki eða hinsegin fólki – þótt kynlíf og nánd tilheyri lífi alls konar fólks. Kynlíf í bíómyndum, bókum, tímaritum, á netinu og víðast þar sem hægt er að nálgast það er í flestum tilfellum leikið, sett á svið sem söluvara. Það er mikilvægt að við áttum okkur á því að yfirleitt gefur þetta efni snarvitlausa mynd af kynlífi venjulegs fólks. Það er út af fyrir sig allt í lagi að láta sig dreyma um kynlíf með bláókunnugri manneskju upp við hillu á bókasafninu um hábjartan dag og fá fimm fullnægingar án þess að nokkur annar eigi erindi í sömu hilluna. Já, þetta er kannski skemmtileg fantasía, en um leið verðum við að átta okkur á að svona kynlíf er fjarri raunveruleikanum og mjög fjarstæðukennt. Samt reynir afþreyingarmarkaðurinn endalaust að selja okkur svona lýsingar. Hvers vegna ætli það sé? • í bókum um kynlíf • í raunveruleikanum • í tónlistarmyndböndum • annars staðar - HVAR SJÁUM VID KYNLÍF? Kynlíf og vísanir í kynlíf birtast víða í samfélaginu. Stundum er það augljóst, stundum eitthvað sem gefið er í skyn. Skoðaðu listann og veltu fyrir þér hvar þú hefur séð eða heyrt kynlíf nefnt eða sýnt. • á netinu • í tímaritum • í sjónvarpi • í bíómyndum • í klámmyndum - • Hvar birtist kynlíf oftast? • Er það sýnt á raunhæfan hátt – eða ýkt? • Hvaða áhrif heldurðu að slíkt geti haft á hugmyndir fólks um kynlíf? PÆLDU ADEINS Í PESSU: -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=