Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

SPURNING DAGSINS: Ég horfi oft á klám því mér finnst það spennandi og fyndið. Samt veit ég að það er ekki raunverulegt. Það er eflaust misjafnt eftir fólki. Það sem gengur fram af mér, það er klám í mínum augum. Svo er kannski eitthvað sem mér finnst sjálfsagður hlutur en öðrum gæti fundist argasta klám. Þegar kynlíf er gert að söluvöru, þá finnst mér vera klám á ferðinni. Klám er leikið. Margir krakkar sem horfa á klám vita að alvöru kynlíf er ekki eins og í klámmyndunum, alveg eins og akstur í raunveruleikanum er ekki eins og í kappakstursmyndum. En ég held samt að sumir rugli saman klámi og alvöru kynlífi. ERLA Þegar fólk fær borgað fyrir kynlífsathafnir sem síðan á að selja öðrum. FINNUR Fyrir mér er klám það sem er óraunhæft og ýkt – svona sem maður sér á netinu. BIRNA Klám er einhvers konar afskræming á kynlífi. Í stað þess að sýna það heilbrigt og jákvætt er verið að velta sér upp úr því neikvæða og sjúka. HASSIM Mér finnst klám vera andstæðan við erótík. Erótík leggur áherslu á það fallega við kynlíf, klám leggur áherslu á það ljóta. JÚLÍ ARON PORVALDUR AIKO - HVAD ER KLÁM? Fyrir mér er það klám þegar kynlíf er slitið úr samhengi við tilfinningarnar og bara gert að líkamlegri athöfn. GUDRÚN - 62

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=