Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

59 Við erum með marga staði á líkamanum sem geta verið næmir fyrir snertingu. Hlýir kossar á varirnar geta vakið sterkar tilfinningar hjá mörgum. Brjóst og geirvörtur eru oft talin meðal næmari svæða líkamans. Það er yfirleitt mjög örvandi fyrir einstaklinga þegar typpi er snert og það sama á við hjá þeim sem eru með píku en þar gegnir snípurinn svipuðu hlutverki. Svo er fjöldi annarra staða á líkamanum sem bregðast við gælum en það er mjög mismunandi hvað okkur finnst gott og hvernig við viljum láta snerta okkur. Varirnar Munnurinn Olnbogabæturnar Handakrikarnir Tærnar Rasskinnarnar Brjóstin Geirvörturnar Typpið Hálsinn Eyrnasneplarnir „Ég hef engan áhuga á að verða ástfanginn né á kynlífi. Er eitthvað að mér?“ Kynhvöt fólks er jafn mismunandi og það er margt. Sum hafa mjög sterka kynhvöt og önnur litla eða enga. Og kynhvötin vaknar líka missnemma. Svo að þú þarft engar áhyggjur að hafa af því að eitthvað sé að þér. Kynfræðingurinn HULDAR ÖRVUNARPUNKTAR Snípurinn Kviður Nafli Bak Tær Augnlok Hendur Handleggir Gagnaugu ERUM VID MED KYNFÆRI UM ALLAN LÍKAMANN? - - • Heilinn gegnir stóru hlutverki þegar kemur að löngun, tilfinningum og nánd. • Þar kvikna hugsanir, forvitni og fantasíur. • Heilinn geymir líka minningar og reynslu sem hafa áhrif á hvernig okkur líður. • Þess vegna segja sum að heilinn sé mikilvægasta „kynfærið“. • Án heilans væru engar tilfinningar, engin löngun og ekkert kynlíf. KYNLÍF BYRJAR Í HUGANUM PÆLDU ADEINS Í PESSU: - Líkaminn hefur fullt af stöðum sem geta verið næmir fyrir snertingu. En það er mjög mismunandi hvað fólki finnst gott og hvar það er næmast. Svæði sem oft eru nefnd: Hvaða staðir á listanum finnst þér líklegir til að vera næmir? Koma einhverjir staðir þér á óvart? Af hverju heldurðu að sama snerting geti verið notaleg fyrir einn en ekkert sérstök fyrir annan?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=