LISTIN AD KYSSA FRANSKUR KOSS EDA SLEIKUR Franskur koss er koss þar sem munnur og stundum tunga eru notuð. Gott er að fara rólega af stað og finna taktinn saman. Mikilvægast er að fylgjast með viðbrögðum hins aðilans og að báðum líði vel. Kossar geta verið mismunandi – stundum léttir og stuttir, stundum lengri og ástríðufyllri. Gott er að muna að koss er bestur þegar báðir aðilar taka þátt og svara hvor öðrum heldur en slappur og afskiptalaus munnur. KOSSAUNDIRBÚNINGUR • Ekki reykja eða veipa - andardrátturinn verður ferskari. • Forðastu lyktarsterkan mat, eins og hvítlauk eða pylsu með öllu nema sá eða sú sem þú ert að kyssa sé að borða það sama. • Passaðu vel upp á tennurnar og borðaðu hollan mat svo að andardrátturinn sé ferskur. • Ekki kyssa neinn ef þú ert með sýkingu í munninum, tannholdinu eða hálsinum. GÆLUR, KELERÍ Það getur verið svo gott og gaman að vera saman, vera góð hvert við annað og sýna væntumþykju. Sum kalla þetta gælur, önnur tala um kelerí, og enn önnur nota eflaust önnur orð yfir þetta. Gælur geta verið ofboðslega skemmtilegt kynlíf – já, kynlíf, því allt það sem hér er talið upp flokkast undir kynlíf. Allt snýst þetta um nálægð, hlýju og væntumþykju – að snertast og njóta þess að vera saman. • Baknudd, fótanudd eða heilnudd á öllum líkamanum. • Að strjúka, kitla, klípa eða narta í gegnum fötin. • Að tala um draumóra sína. • Að kyssast og faðmast. • Að kyssast, sleikja og káfa. • Að dansa saman við rólega tónlist. • Að fara saman í sturtu. • Að strjúka, bursta eða gæla við hárið. • Að strjúka eða gæla við kynfærin. • Að fara úr fötunum saman. • Að horfa á hinn aðilann fara úr fötunum. Ef þig langar að kyssa einhvern er mikilvægt að vita hvort hinn aðilann langar að kyssa þig. En hvernig veistu það? Einfaldasta leiðin er að spyrja „má ég kyssa þig?“ – EDA HVAD VID VILJUM KALLA PAD GÆLUR GETA TIL DÆMIS VERID: - - - - - - - 58
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=