GOTT AD HAFA Í HUGA Nálægð og snerting geta verið mjög notaleg en það er líka eðlilegt að þurfa tíma til að venjast atlotum annarra. Sum hafa ekki vanist slíkri snertingu og öðrum finnst nekt eða nálægð stundum vandræðaleg í fyrstu. Kynferðisleg fullnæging getur haft jákvæð áhrif á líðan fólks. Rannsóknir benda til þess að hún geti bæði bætt andlega og líkamlega líðan. Hún er sem sagt holl og góð, kostar ekki neitt og er alltaf við höndina. Það sem veldur þessu er losun endorfíns í heilanum. Endorfín er eins konar náttúrulegt verkjalyf líkamans. Það losnar líka úr læðingi við íþróttaiðkun. Fullnæging getur verið mjög mismunandi upplifun. Hjá sumum er hún fyrst og fremst staðbundin tilfinning í kynfærunum sem er notaleg og slakandi. Hjá öðrum getur hún verið sterkari upplifun sem líður um stærri hluta líkamans. Fólk lýsir fullnægingu á ólíkan hátt. Sum tala um mikla vellíðan eða spennulosun, önnur um hlýjar tilfinningar og nánd. Það hvernig við upplifum fullnægingu er jafn misjafnt og við erum mörg og mikilvægt að hver og einn finni sína leið og upplifun. ALLIR GAGNRÝNENDUR MÆLA HIKLAUST MED FULLNÆGINGUNNI OG GEFA HENNI ***** (5 STJÖRNUR) • breytingar á blóðþrýstingi • hraðari eða dýpri andardráttur • spenna eða samdrættir í vöðvum, til dæmis í rasskinnum • spenna í handleggjum, fótleggjum eða hálsi • breytt svipbrigði í andliti • aukinn sviti • roði í andliti, á hálsi eða brjósti • fiðringur eða titringur í fingrum og tám • andvörp eða djúpur andardráttur • hljóð, upphrópanir, hlátur eða jafnvel grátur FULLNÆGING!!! Slakaðu á Rólegt andrúmsloft getur hjálpað – til dæmis dempað ljós, róleg tónlist eða einfaldlega að anda rólega og slaka á í líkamanum. Það getur líka skipt máli að umhverfið sé þægilegt, til dæmis að ekki sé of kalt í herberginu. Gefðu þér tíma Ekki þarf að flýta sér. Gott er að kynnast nálægð og snertingu smám saman. Traust skiptir máli Mikilvægt er að báðum líði vel og að gagnkvæm virðing sé alltaf til staðar. Óþægilegt kitl eða hrekkir eru ekki í boði. Virðið mörk Allir eiga rétt á sínum mörkum. Ef þér líður ekki vel er alltaf í lagi að stoppa. Gott er að skiptast á að snerta hvort annað, t.d. á nokkurra mínútna fresti. Segðu frá Það er gott að segja ef eitthvað er óþægilegt – og líka ef eitthvað er sérstaklega notalegt. Talið saman Með því að tala saman og hlusta hvert á annað lærir fólk smám saman meira um líkama sinn, mörk og tilfinningar. 1 2 3 4 5 6 - KYNFERDISLEG FULLNÆGING HVAD ER SVONA MERKILEGT VID FULLNÆGINGU? - - - - 60 Fyrir þau sem eru að hugsa um að stunda kynlíf með öðrum er gott að hafa þetta í huga: Fullnæging getur haft ýmis áhrif á líkamann. Viðbrögðin eru þó mismunandi á milli einstaklinga og upplifa því ekki allt sem hér er nefnt: Tilfinningarnar geta orðið mjög sterkar.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=