Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

55 BIDDU UM HLUSTUN - EKKI RÁDGJÖF Það kunna ekki allir að hlusta. Sum halda að þú þurfir bara góð ráð og uppörvun ef þú lendir í ástarsorg. Þú gætir fengið svona viðbrögð … „Blessaður láttu ekki svona … komdu bara í bíó.“ „Hvað ertu að æsa þig yfir Magga ... það eru margir flottari en hann.“ „Ég hef nú líka átt rosalega erfitt … og þá var enginn góður við mig.“ Það er lítil hjálp í svona svörum. Þú þarft síst af öllu að heyra um raunir annarra eða láta gera lítið úr þinni ástarsorg eða láta gagnrýna þig fyrir viðbrögð þín. Fólk ætlar ekki að særa þig eða gera lítið úr tilfinningum þínum … allt er þetta vel meint en kannski sagt í hugsunarleysi. Þess vegna verður þú að biðja um hlustun. Það er ekkert dónalegt að segja: „Viltu bara hlusta – ekki tala.“ Ef þú ert ekki í trúnaðarsambandi við foreldra þína, systkini eða vini þá er þetta rétti tíminn til að brjóta ísinn. Flest vilja hjálpa þegar erfiðleikar steðja að – trúðu því. Ef þú nærð ekki góðu sambandi við einhvern þér nákominn þegar þér líður illa skaltu endilega leita til annarra, til dæmis kennara, námsráðgjafa, skólasálfræðings eða skólahjúkrunarfræðings. Hjálparsíminn 1717 er alltaf opinn, það er líka hægt að leita til Barna- og unglingageðdeildar, Bergsins eða hafa samband við Sjúkt spjall hjá Stígamótum. TILFINNINGAPROSKI Ástarsorg er mikilvægur þáttur í þroska mannsins. Þetta er ein af brellum náttúrunnar … allt er gert til að göfga þig, þroska og styrkja sem manneskju. Það lenda margir í ástarsorg á unglingsárunum. Þær geta verið andstyggilegar, meiðandi og erfiðar … en það er huggun harmi gegn að vita að ástarsorg er þroskandi og mannbætandi. Tilfinningalífið nær nýjum hæðum, eflist og dýpkar, og þú öðlast betri skilning á öðru fólki, líðan þess og tilfinningalífi. Það er líka gott að muna að erfið tímabil ganga yfir. Með tímanum lærum við af reynslunni og öðlumst betri skilning á sjálfum okkur, öðrum og því sem við köllum ást. AD LOKA Á TILFINNINGARNAR Sum velja að loka á tilfinningarnar. Leggja á flótta og reyna að forðast að finna til. Þannig getur þú aftengt þig, forðast sjálfið og frestað vandanum. En búðu þig undir sálarkrísur seinna á ævinni. HJÁLP! • Það er líka stundum gott að vera í einrúmi með tilfinningum sínum og velta sér upp úr vanlíðan sinni. • Þá er grátur besta lækning í heimi. • Það getur verið hjálplegt að skrifa niður hugsanir sínar. • Útivera og hreyfing geta auðveldað þér lífið og flýtt verulega fyrir bata, það er nú vísindalega sannað. - - EKKI PEGJA YFIR LÍDAN PINNI! - LEIDIN ÚT ÚR ÁSTARSORGINNI ... TALAÐU … nú er gott að eiga einhvern góðan að sem þú getur treyst fyrir tilfinningum þínum. Besta ráðið í ástarsorg er að tala og tala og tala um líðan sína, vonbrigði, reiði, höfnun, vonleysi, sjálfsvorkunn og allt sem kemur upp í hugann … - SORGARFERLID Ástarsorg getur vakið sterkar tilfinningar. 1. Afneitun er oft fyrst á dagskrá. Þá reynir fólk að telja sér trú um að þetta geti ekki verið rétt. 2. Síðan getur depurð eða þunglyndi hellst yfir og neikvæðar hugsanir eiga greiðan aðgang. 3. Stundum kemur uppreisn gegn aðstæðum – vangaveltur um að snúa til baka, reyna aftur. 4. Reiði yfir óréttlæti heimsins getur líka komið fram. 5. Smám saman getur þó komið sátt við orðinn hlut og þá fara jafnvel að sjást kostir í stöðunni. Þessi líðan er algeng hjá fólki sem upplifir sorg – hvort sem hún tengist ástarsorg eða öðrum áföllum. Það er þó mjög mismunandi hversu erfitt sorgarferlið er. Sum fara tiltölulega hratt í gegnum það og ná að jafna sig á nokkrum dögum eða vikum en önnur eru í marga mánuði og jafnvel ár að ná aftur jafnvægi í sálina. -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=