ÚT MED PAD? Þegar Hjálmar var 16 ára lenti hann í ástarsorg sem hann bar lengi vel í einrúmi. Hann segir svona frá: „Það sem mér fannst merkilegast að uppgötva var að ég er ekki einn. Eftir að Aríel sagði mér upp lenti ég í svo hrikalegri ástarsorg að mér fannst eins og heimurinn væri ekki bara kolsvartur og ömurlegur, heldur væri hann allur á móti mér. En ég þóttist vera kúl og sagði engum frá því hvernig mér leið. Það var ekki fyrr Það er ótrúlega mikilvægt að tala við aðra um líðan sína og hugsanir. Það er eins og vandinn gufi oft upp við að koma honum í orð. Við getum líka notað aðrar aðferðir, eins og að skrifa dagbók, yrkja ljóð, tala hugsanir okkar inn á myndband, semja tónlist um tilfinningar okkar eða eitthvað annað sem okkur dettur í hug. Allt getur þetta hjálpað okkur að skilja sjálf okkur og hvernig okkur líður. Það er líka gott að átta sig á að allir lenda í mótlæti og oftast er það bara til að styrkja mann og þroska. Oftast er vandinn bara tímabundinn og þótt allt virðist ömurlegt í augnablikinu, þá birtir upp um síðir. en ég fór að öskra á litlu systur mína eitt kvöldið, alveg búinn á því ... og fór svo að grenja þegar pabbi spurði hvað væri eiginlega í gangi, þá gat ég ekki meir. Svo ég lét bara allt flakka ... og fattaði hvað ég var leiður yfir að hafa verið hafnað. Pabbi sagði mér svo frá fyrstu ástinni sinni. Sem betur fer gekk það ekki upp því annars væri ég ekki hér! “ ÁSTARSORG … þegar þrá eftir áhuga, athygli eða samvistum við aðra manneskju gengur ekki eftir. … þegar sambandsslit verða. - - 54 síðustu plötunni
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=