Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

56 KYNLÍF Sum skilgreina kynlíf sem „allt lífið sem kynvera". Öðrum finnst sú skilgreining of almenn og segja að kynlíf sé „allt sem getur vakið kynferðislega örvun eða veitt kynferðislega ánægju". Við erum þó öll einstök. Líkamar okkar, reynsla, langanir og viðbrögð eru mismunandi. Þess vegna getur það sem einum finnst vera kynlíf verið eitthvað allt annað fyrir annan. ATH! Allt þetta getur flokkast undir kynferðisleg samskipti eða nánd. Fólk hefur mismunandi áhuga og þarf ekki að prófa allt – eða neitt af þessu. Mikilvægast er að virða eigin mörk og mörk annarra og gera bara það sem einstaklingum líður vel með. Það má líkja kynlífi við mat. Það þykir ekki öllum sami matur góður og fólk hefur mismikla matarlyst. Þannig er það líka með kynlíf – við erum öll ólík og það sem einum finnst gott hentar ekki endilega öðrum. Sum halda að það sé til ein „rétt“ leið eða ákveðin tækni sem virkar fyrir alla. En svo er ekki. Mikilvægast er að kynnast eigin líkama og tilfinningum. FYRSTI BÓLFÉLAGINN ERT PÚ!!!! Kosturinn við að velja sig sem fyrsta bólfélagann: • Enginn þekkir þig betur en þú. • Þú getur prófað þig áfram í rólegheitum og kynnst því hvað þér finnst gott. • Þú þarft ekki að finna fyrir feimni eða pressu frá öðrum. • Þú elskar þig og þú ætlar aldrei að bregðast þér. • Æfingin skapar meistarann. Við getum þó verið sammála um að … sjálfsfróun sé kynlíf … kossar séu kynlíf … kelerí sé kynlíf … munngælur séu kynlíf … samfarir séu kynlíf Haldast í hendur Kossar og gælur Hægur dans Örvandi samtöl Sjálfsfróun Nudd Að fróa öðrum Munngælur Samfarir MISMUNANDI SMEKKUR NÁND GETUR VERID MARGSKONAR -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=