53 Það er margt líkt með öpum og mönnum segja vísindamenn, enda erum við skyldar tegundir. Þegar bavíanar laðast hver að öðrum gerist það á mjög svipaðan hátt og þegar krakkar byrja að draga sig saman á skólaballi. Bavíanarnir byrja á því að ná augnsambandi, alveg eins og við gerum. Þeir líta undan, athuga svo hvort hinn aðilinn sé ekki örugglega að horfa, lyfta augabrúnum, líta niður, líta aftur upp og þora þá loksins að koma nær. Og hvað gerist svo? Jú, krakkarnir fara að dansa saman, er það ekki? Bavíanar dansa kannski ekki en þeir gera hliðstæðan hlut, þeir byrja að hreyfa sig eins. Ef annar vaggar öxlunum gerir hinn það líka. Ef annar dúar í hnjánum gerir hinn eins. Spáðu í það. SPÁDU Í MIG DÝRAFRÆDIN: LALLI JÁ NEI JÁ NEI ÖRN FÚSI Ég veit að Rúnar hefur gert það en ég veit ekki með Sigga og Loga. Logi heldur að ég hafi gert það og hann hlýtur að hafa gert það sjálfur. Hann lætur alla vega þannig. Ég held að Viggi hafi gert það oftast af okkur strákunum. Af hverju hef ég aldrei gert það? Siggi segir að Fúsi hafi gert það með Sollu. Solla segist aldrei hafa gert það. Hvort ætli segi satt? Er eitthvað að marka þetta mont í þessum gæjum? Baldur og Fúsi eru alltaf að gera það skilst mér. Hvenær kemur að mér? ALLIR ERU AD GERA PAD NEMA ÉG - - Rúnar og Siggi tala eins og þeir hafi gert það. Ætli það sé satt? Örn gerði það víst í hittifyrra. Hann segist hafa verið fyrstur í vinahópnum. Ég verð örugglega síðastur. Hvað fær okkur til að þykjast vera annað en við erum? Eða þykjast hafa gert það sem við höfum ekki gert? Svaraðu þessum spurningum í huganum HEFUR ÞÚ GERT ÞAÐ? Ef – Nei – ÞYKIST ÞÚ HAFA GERT ÞAÐ? Ef – Já – HVERS VEGNA?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=