Skoðaðu þína eigin hegðun í samskiptum við þau sem þú hrífst af. VID REYNUM VID ... Eigum við aðeins að velta fyrir okkur hvernig við túlkum samskipti okkar við annað fólk? Kannski má túlka sama viðmótið á margvíslegan hátt og kannski er fólk ekki alltaf að segja okkur það sem við höldum. • Ef manneskja sem þú ert að spá í er hress og örugg í samræðum við þig – hvað gæti það þýtt? • Ef manneskja sem þú ert að spá í roðnar eða verður vandræðaleg þegar þú talar við hana – hvað gæti það þýtt? • Ef manneskja sem þú ert að spá í sýnir þér litla athygli eða forðar sér þegar þú nálgast – hvað gæti það þýtt? • Ef manneskja sem þú ert að spá í djókar og hæðist að þér – hvað gæti það þýtt? • Ef manneskja fylgir þér á samfélagsmiðlum og líkar við myndirnar þínar en þykist ekki sjá þig þegar þið hittist – hvað gæti það þýtt? Hugleiddu hvernig fólk getur túlkað sömu aðstæður. SNÚUM DÆMINU VID • Hvernig veistu hvort einhver er hrifin/n/ð af þér? • Hefur þú einhvern tíma, jafnvel óvart, komið illa fram við einhvern eða sýnt lítilsvirðingu? - 52 Hvernig gætir þú túlkað þessar aðstæður? • Hvernig bregst þú við þegar einhver sýnir þér áhuga? • Hvenær líður þér vel og átt auðvelt með að vera þú sjálf/ur/t í samskiptum? PÆLDU Í PESSU:
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=