51 SPURNING DAGSINS: HVERNIG LÆTURDU VITA AD PÚ HRÍFIST AD EINHVERJUM? - - - Ég reyni að lenda með honum í hópverkefnum eða eitthvað svoleiðis. Eða bið um að fá að sjá heimaverkefnin hans af því ég hafi ekki alveg skilið þau. Ég veit það ekki. Reyni að vera nálægt henni, sitja við sama borð í matsalnum eða eitthvað. Kannski brosa til hennar ef ég þori. Ég passa að hlusta alltaf á það sem hún er að segja. Ef hún segir eitthvað fyndið, þá hlæ ég og segi kannski hinum strákunum frá því sem hún sagði. Þeim finnst það ekki alltaf jafn fyndið og mér. HELGI MAGNÚS Ég fylgi henni á samfélagsmiðlum og líka við myndir og svona. Passa að líka ekki við allar, það væri of augljóst. Svo set ég kannski smá athugasemd, broskall eða eitthvað þannig. Og vona að hún svari og að við getum byrjað að spjalla. Æ, ég bara þykist ekki sjá hann. Ef hann reynir að tala við mig, þá læt ég eins og ég hafi engan áhuga. Það virkar stundum. SARA PAVEL FRÍDAÉg segi honum bara alltaf frá því þegar mér finnst eitthvað gott um hann. Til dæmis ef hann fær hátt á prófi, þá dáist ég að honum. Ef hann lætur klippa sig, þá tala ég um hvað þetta fari honum vel. Eitthvað svona bara. RÓS ER TIL HIN EINA SANNA LEID? Það er engin ein „rétt leið“ til að sýna áhuga. Fólk gerir það á mismunandi hátt – og það er alveg eðlilegt. -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=