Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

50 SAMSKIPTI Góð samskipti eru forsendan fyrir nánum tengslum og náin tengsl eru ótrúlega dýrmæt. En eins og með allt sem gott er, þá þarf að leggja sig fram við að eiga góð samskipti við aðra. VELTU FYRIR PÉR Það er svo merkilegt að stundum sækjumst við eftir félagsskap sem okkur líður ekki vel í. Af hverju ætli það sé? Gerir þú það? Hvaða áhrif hafa vinir þínir á þig? Líður þér vel með þeim? Getur þú slappað af með þeim? Getið þið verið eðlileg saman, talað um það sem ykkur langar til að tala um, verið óhrædd hvert við annað? Getur þú treyst því að vinir þínir standi með þér ef eitthvað er að? Eða ríkir kannski spenna og togstreita á milli ykkar? Eruð þið að sækjast eftir spennu og togstreitu? Hugsaðu um það. Það er mikilvægt að manni líði vel með fólkinu sem maður umgengst. ÖNNUR PÆLING Höfum við ástæðu til að vera óörugg og hrædd? Þurfum við að þykjast vera sterk og stór ef okkur líður ekki þannig? Er ekki nóg að vera góð manneskja? Hvort geðjast okkur betur að fólki sem er það sjálft eða fólki sem þykist vera eitthvað annað en það er? Þurfum við að leika eitthvert hlutverk fyrir alla í kringum okkur? HRÓS Í HNAPPAGATID Finnst þér gaman þegar þú nýtur óskiptrar athygli einhvers – þegar horft er á þig, brosað til þín, hlustað á þig, tekið undir með þér o.s.frv. Finnst þér þægilegt þegar einhver tekur eftir því sem þú gerir vel og hrósar þér fyrir verkin þín eða framkomu þína? Hrós er mjög einföld leið til að láta fólk vita að þér líki vel við það eða kunnir að meta það sem það gerir. Oft erum við fljót að láta vita af því ef okkur mislíkar eitthvað en erum síðan alltof nísk á hrósið ef okkur líkar eitthvað vel. Með því að hrósa hvert öðru erum við ekki bara að sýna kurteisi – við erum að segja „Hæ, þú stendur þig vel og ég tek eftir því.“ 10 SAMSKIPTARÁD 1. Sýndu öðrum athygli: hlustaðu af áhuga, haltu augnsambandi og kinkaðu kolli. 2. Hrósaðu og segðu jákvæða hluti. Flestum finnst gott að fá viðurkenningu. 3. Ekki tala illa um aðra – þá gæti fólk haldið að þú baktalir það líka. 4. Settu þín mörk og láttu vita hvar þau liggja, til dæmis: „Ég vil ekki tala um þetta“ eða „Mér finnst þetta óþægilegt“. 5. Notaðu húmor og reyndu stundum að hlæja að eigin mistökum. 6. Vertu traustur vinur og stattu með fólkinu sem þér þykir vænt um. 7. Ekki láta ótta við höfnun stoppa þig – oft er hann meiri en ástæðan fyrir honum. 8. Mundu að allir eiga sína slæmu daga, líka þau sem virðast hafa allt á hreinu. 9. Ræktaðu traust og trúnað í samskiptum við aðra. 10. Mundu að sjálfstraust er mikilvægt – að vita hvað þú vilt og standa með því. Væri það ekki mikill munur ef ekki væri hægt að misskilja neitt í samskiptum fólks? Eflaust væri það svo en samskipti okkar eru oft svo flókin og skilaboðin sem við sendum hvert öðru svo margræð að okkur gengur ekki alltaf vel að skilja hvert annað. Hvað þá eftir að samfélagsmiðlar urðu stór þáttur í lífi margra. Samskiptin þar eru stundum mjög ólík samskiptum í eigin persónu, oft grófari og neikvæðari. Af hverju ætli það sé? Er í lagi að haga sér öðruvísi á samfélagsmiðlum en í raunheimum? Segja má að samskipti séu skemmtilegasta og flóknasta þrautin í lífinu. Fátt er meira gefandi en góð og innihaldsrík samskipti. SAMSKIPTI ERU SVO FLÓKIN!!! - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=