47 Álit annarra getur haft áhrif á hvernig við sjáum okkur sjálf. Orð og viðbrögð fólks í kringum okkur – vina, fjölskyldu, kennara eða annarra – geta styrkt okkur eða stundum gert okkur óörugg. Þess vegna getur verið gott að staldra við og velta því fyrir sér hvað við sjálf hugsum og finnum. Hugleiddu hvort eitthvað af þessu eigi við um þig: • Ég velti því mikið fyrir mér hvað krökkunum finnst um mig. • Ég legg mikið upp úr því að líta rétt út. • Ég sé hvað er flott og inn hjá hinum krökkunum. • Mér finnst skipta máli að vera í svipuðum fötum og flestir krakkarnir. • Ég legg mikið á mig til að passa inn í „rétta“ hópinn. ÁLIT ANNARRA? Það er varla hægt að nýta tímann betur … og samt erum við ekki að tala um að hanga fyrir framan spegilinn og kreista bólur eða hanga á netinu eða fyrir framan sjónvarpið. Það gerir ekkert fyrir egóið – síður en svo. Það er svo ótrúlega margt sem þarf að huga að á hverjum degi. Lítum aðeins á það. NÚ ÆTLARDU AD GEFA PÉR TÍMA TIL AD SKODA PIG Hvað hefur áhrif á hvernig þér líður? • Svefntími • Mataræði • Útlitið • Samfélagsmiðlar • Samskipti við vinina • Samskipti við fjölskylduna • Útivera eða dagsbirta • Fjárhagurinn • Umgengni (herbergið mitt, námsbækurnar, fötin …) • Hreyfing • Sjónvarpsáhorf • Tölvunotkun • Heimanámið • Stress • Stundvísi • Fastar venjur (lífið í föstum skorðum – svefn, matartímar, hreyfing …) NÚ SKALTU SKODA PIG - - - - - HVERNIG VAR DAGURINN PINN? Stundum er gott að gefa sér tíma til að staldra við og taka eftir eigin líðan. Með því lærum við betur hvað hjálpar okkur að líða vel og hvað við þurfum meira af í lífinu. Það er auðvelt að taka lífinu sem sjálfsögðum hlut og stoppa sjaldan til • Hvað lét þér líða vel í dag? • Hvað veitti þér mesta ánægju? • Hvað var skemmtilegast í dag? • Hvað lærðir þú í dag? • Hvað finnst þér um daginn þegar þú lítur til baka? að hugsa um hvernig okkur líður eða hvernig dagarnir líta út. Hugleiddu spurningarnar hér að neðan. Þú getur hugsað um þær, rætt þær við aðra eða skrifað niður svör annars staðar.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=