• Ef fjölskyldan þín ætti að nefna helstu kosti þína – hvað myndi hún segja? • Ef vinir þínir ættu að nefna helstu kosti þína – hvað myndu þeir segja? • Ef afi, amma eða aðrir ættingjar ættu að hrósa þér – hvað myndu þau segja? • Ef kennari ætti að hrósa þér – hvaða eiginleika myndi hann eða hún nefna? Það getur líka verið forvitnilegt að spyrja fólk í kringum þig hvaða kosti það sér hjá þér. Stundum sjá aðrir styrkleika í okkur sem við tökum ekki alltaf sjálf eftir. Hvernig sé ég mig – og hvernig sjá aðrir mig? Hugleiddu hvaða orð hér fyrir neðan gætu átt við þig. Dettur þér í hug fleiri orð sem gætu lýst þér? ÉG UM MIG Taktu þér smástund til að skoða þig og hugsa um hvernig þú sérð þig – og hvernig aðrir gætu séð þig. FRÁ MÉRTIL MÍN traust framtakssemi næmni gjafmildi húmor glaðværð skipulag styrkur hugmyndarauðgi hreysti snyrtimennska hjálpsemi samviskusemi skynsemi ákveðni góðmennska ljúfmennska handlagni dugnaður blíða HVERNIG SJÁ ADRIR MIG? - PÆLDU Í PVÍ Við höfum öll mismunandi styrkleika sem geta nýst á ólíkum stöðum. Hugleiddu dæmin hér fyrir neðan. Hvaða eiginleikar gætu nýst í þessum aðstæðum? HVERNIG SÉ ÉG MIG? 48 Styrkleikar við mismunandi aðstæður Ef þú værir að ... • bjóða þig fram til forseta Íslands – hvaða styrkleika myndir þú nefna? • setja inn lýsingu á þér á stefnumótavef – hvernig myndir þú lýsa þér? • sækja um starf á ævintýra- og leikjanámskeiði hjá íþróttafélagi – hvaða kosti myndir þú nefna? • sækja um byggingarvinnu – hvaða eiginleikar gætu nýst þar? • sækja um starf á afgreiðslukassa í matvörubúð – hvaða kosti myndir þú nefna? Hugleiddu spurningarnar og ræddu þær við aðra. Hugleiddu þetta:
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=