Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

AD EFLA Hugsaðu nú aðeins um lífið sem þú lifir núna – hvernig þú hagar daglegum þörfum þínum, nýtir tímann og sinnir þér og öðrum. Hvernig líður þér með þennan lífsstíl? Er hann til þess fallinn að byggja upp sterka sjálfsmynd eða ferðu illa með þig? Hugleiddu spurningarnar hér fyrir neðan. Þú getur velt þeim fyrir þér, rætt þær við aðra eða skrifað niður hugsanir þínar. • Hvað þarftu mikinn svefn til að líða vel? • Hvaða áhrif hefur dagsbirta á líðan þína? • Hvaða matur fer vel í þig? • Með hvaða fólki líður þér vel? • Með hverjum getur þú verið eins og þú ert? • Hverjum getur þú sagt hvernig þér líður? • Getur verið gott að geta bæði hlegið og þagað með einhverjum? SJÁLFSMYNDINA SJÁLFSSKODUN - - 46 Hlustaðu á magann – hann segir okkur hvenær við erum svöng. Þá er gott að hlusta á hann og næra okkur vel. Reyndu líka stundum yfir daginn að staldra við og taka eftir hvernig þér líður. • Hvað lætur þér líða vel? • Hvað gefur þér orku? • Hvað hjálpar þér að slaka á? Að taka eftir svona hlutum getur hjálpað til við að byggja upp sterka og jákvæða sjálfsmynd. Flestir unglingar þurfa að fá langan og góðan nætursvefn – allt frá 8 til 12 klst. Ef við fáum ekki sólarljós eða dagsbirtu getum við orðið þung og döpur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=