Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

43 Stundum eru unglingar í vafa um kynhneigð sína. Það er í góðu lagi að vita ekki hverjum þú laðast að eða hvort þú laðast yfirleitt að einhverjum. Það sem skiptir máli er að hugsa fallega og án fordóma um eigin tilfinningar og annarra og fagna því sem verða vill. Áður fyrr var aðeins talað um gagnkynhneigð, svo bættist samkynhneigð við en í dag vitum við að kynhneigðir eru alls konar og að lífið er ekki svona einfalt. Aðrar kynhneigðir eru til dæmis eikynhneigð (að laðast aldrei eða næstum aldrei að öðru fólki), tvíkynhneigð (að laðast að tveimur eða fleiri kynjum) og pankynhneigð (að laðast að fólki óháð kyni). Sumum finnst mikilvægt að geta skilgreint kynhneigð sína, á meðan öðrum finnst það óþarfi. Hérlendis hefur orðið hinsegin öðlast sess sem regnhlífarhugtak yfir allt það fólk sem er ekki gagnkynhneigt og/ KYNHNEIGD eða fellur ekki inn í það sem telst hefðbundið kyn eða kynhlutverk. Kynhneigð snýst um það hverjum við löðumst að. Kynhegðun – það hvað fólk gerir eða gerir ekki í kynlífi – segir ekki endilega til um kynhneigð. Kynhneigð er hluti af okkur og það getur tekið tíma að átta sig á henni. Unglingsárin eru oft sá tímapunktur þegar við áttum okkur betur á því í hvaða átt hún stefnir. - Hinsegin fólk hefur alltaf verið hluti af mannlegu samfélagi. Það hefur mætt miklum fordómum og ofsóknum í gegnum tíðina og hefur oft neyðst til að lifa í felum. Réttindabarátta hinsegin fólks hefur orðið til þess að fordómar gegn hinsegin fólki eru sem betur fer á undanhaldi á sumum stöðum í heiminum. Þrátt fyrir það eru miklir fordómar gagnvart hinsegin fólki víða, líka hér á landi. Það er því miður ávallt hætta á bakslagi og virðast fordómar í garð hinsegin fólks oft daglegt brauð. Hugaðu t.d. að því hvenær þú heyrðir síðast einhvern nota hinsegin hugtak til að gera grín eða lýsa einhverju á neikvæðan hátt. Oft er talað um að fólk „komi út úr skápnum“ þegar það segir öðrum frá kynhneigð sinni eða kynvitund. Það er fagnaðarefni þegar hinsegin fólk þarf ekki lengur að fela sig eða lifa með skömm yfir kynhneigð sinni eða öðrum þáttum. Það er allra hagur að fólk geti verið sátt við kynhneigð sína og geti lifað sínu lífi (og kynlífi) samkvæmt því. Þrátt fyrir það er það enn stórt skref fyrir marga að koma út úr skápnum og er mikilvægt að sýna því skilning og virðingu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=