42 KYNIN ÖLL Fólk virðist ekki þreytast á að velta fyrir sér hegðun kynjanna, hvað sé eins, hvað sé dæmigert eða hvað sé öðruvísi. Þessar vangaveltur geta verið skemmtilegar en gallinn við þær er að þær líta fram hjá því að fólk er allskonar. Þær gera ráð fyrir að einhver ein hegðun sé körlum eðlislæg, einhver önnur hegðun sé konum eðlislæg og enn önnur hegðun sé í eðli kvára. Með því er búið að skapa ímyndir sem skilgreina hvað sé „eðlileg hegðun“ kynja. • Hvað er talið karlmannlegt? • Hvað er talið kvenlegt? • Hvað telst ódæmigert? • Hvað fellur utan þessara skilgreininga? • Er yfirleitt hægt að skilgreina þetta? • Þurfum við að vera sammála um slíkar skilgreiningar? • Getur verið þvingandi að þurfa að fylgja ákveðnum staðli um hegðun, útlit eða framkomu? Oft heyrum við setningar eins og: „Strákar eru …“ „Stelpur eru …“ „Stálp eru …“ Samfélagið hefur alls konar hugmyndir um hvernig mismunandi kyn eigi að vera, haga sér eða líta út. EF PÚ PÆLIR Í PVÍ ... STRÁKAR ERU ... STELPUR ERU ... STÁLP ERU ... Pældu í því • Hvaða hugmyndir heyrir fólk oft um stráka, stelpur eða stálp? • Geta einstaklingar verið mjög ólíkir þó þeir séu af sama kyni? • Finnst þér þessar hugmyndir passa við alla? • Hvernig geta slíkar staðalmyndir haft áhrif á fólk?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=