Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

SJÁLFSMYNDIN Sjálfsmyndin snýst um það hvernig við sjáum okkur sjálf og hvaða afstöðu við höfum til sjálfra okkar. Sjálfsmyndin ræður því að miklu leyti hvernig okkur líður – hvort við erum hamingjusöm eða ekki. Sjálfsmyndin hefur gífurleg áhrif á hvernig okkur gengur í lífinu, hvernig við hegðum okkur og hvernig öðrum líður nálægt okkur. Hún stjórnar því hvernig við upplifum umhverfi okkar, hvernig við túlkum viðbrögð annarra við okkur, hvort okkur finnst allt og allir vera á móti okkur eða með okkur. Sterk eða veik sjálfsmynd getur stjórnað því hvaða áhrif aðstæður og annað fólk getur haft á líðan okkar. Öll búum við yfir alls konar góðum eiginleikum. Til dæmis að: • hlusta á fólk sem er í vanda • vera fyndin og fá fólk til að hlæja • vera treystandi og halda leyndarmálum • koma með góðar hugmyndir og sýna frumkvæði • hrósa öðrum • samgleðjast og styðja aðra • setja sig í spor annarra • viðurkenna mistök • biðjast afsökunar • fyrirgefa JÁKVÆD SJÁLFSMYND - NEIKVÆD SJÁLFSMYND - HVADA JÁKVÆDU EIGINLEIKA HEFUR PÚ? - - HUGLEIDDU PAD! Öll erum við ólík og getum komið fram á ólíkan hátt. Sum gera ýmislegt sem þeim hefði aldrei dottið í hug að gera við skemmtileg tækifæri og mörg gera eitthvað sem þau höfðu ekki hugmynd um að þau gætu – syngja eins og englar, semja lög, dansa eða reyta af sér brandarana svo allir viðstaddir veltast um af hlátri. Getur verið að við búum yfir alls konar hæfileikum sem eru bara lokaðir inni í okkur á bak við alls konar hömlur og höft? Þurfum við bara að opna okkur og hleypa innri persónunni út? Hvað finnst þér? SLAKADU Á OG NJÓTTU PÍN Því miður gefur umhverfið okkur oft til kynna að við séum einhvern veginn ekki nógu góð – að það sé margt sem við eigum að skammast okkar fyrir. Alls staðar eru skilaboð um að útlit okkar sé ekki í lagi. Það reynist mörgum erfitt að standast væntingar foreldranna, umhverfisins og okkar sjálfra … og einhverra hluta vegna eru neikvæðar hugsanir oft frekari en þær jákvæðu. Við þurfum að muna eftir öllum þeim eiginleikum og persónutöfrum sem við búum yfir, en þeir eru oft í felum á bak við minnimáttarkenndina sem bælir okkur og kvelur. Við þurfum að hleypa persónuleikanum út. - - 44 Hvaða eiginleikar skipta þig mestu máli?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=