Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

41 TYPPASKODUN TYPPI ERU ALLS KONAR Typpi eru mjög mismunandi – misstór, missver, misbogin, misbein, mislöng og svo framvegis. Það er ekkert eitt sem er betra en annað. Typpið er hluti af líkamanum og því er mikilvægt að fylgjast með því – og eistunum líka. Stundum geta komið upp smávægileg vandamál sem gott er að taka eftir. Flest þeirra eru þó saklaus og ganga yfir af sjálfu sér. – Ef typpið verður rautt og aumt, til dæmis á forhúðinni eða kónginum, getur það verið vegna núnings við föt eða vegna ofnæmis fyrir efnum í nærbuxum. Þá getur hjálpað að skipta um föt og sjá hvort þetta lagast ekki á stuttum tíma. – Það er eðlilegt að fá bólur á typpið og punginn eins og annars staðar á líkamann. Jú, jú, það getur verið frekar óþægilegt en það er ekkert athugavert við það. – Ef sterk lykt kemur af typpinu er það oft merki um að kominn sé tími til að fara í sturtu. Undir forhúðinni myndast smurning sem ver og smyr kónginn og gerir það að verkum að hægt er að draga forhúðina aftur. Þessi smurning er bráðnauðsynleg og við lítum alls ekki á hana sem óhreinindi en með tímanum getur lyktin orðið sterkari. Þá er gott að skola undan forhúðinni í sturtu. Það þarf ekki sápu á typpið en ef hún er notuð er best að velja milda, ilmefnalausa og helst ofnæmisprófaða sápu. – Ef ójöfnur eða hnúðar finnast í eistum er mikilvægt að láta vita og leita ráða hjá foreldri eða forsjáraðila, hjúkrunarfræðingi í skólanum eða lækni. -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=