Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

40 - Hjá þeim sem eru með typpi felst sjálfsfróun oft í nuddi eða núningi á typpinu sem getur endað með fullnægingu eða sáðláti. En við skulum ekki vanrækja aðra líkamshluta. Geirvörturnar á sumum eru næmar fyrir örvun og nuddi og sömuleiðis maginn, lærin, pungurinn og svæðið í kringum hann, já og auðvitað margt fleira. Typpið er mjög næmt fyrir snertingu og getur fljótt stífnað við örvun. Þegar það gerist er algengt að halda um typpið með hendinni og hreyfa hana fram og til baka. Það kallast að fróa sér. Sumum finnst gott að nudda forhúðina yfir kónginn, öðrum að snerta hann beint, halda framarlega eða aftarlega um typpið. Fólk finnur sjálft hvað því finnst gott. Sjálfsfróun er mjög algeng SJÁLFSFRÓUN – HOLLT OG GOTT EINSTAKLINGS KYNLÍF Með kynþroskanum vaknar oft meiri forvitni um eigin líkama og tilfinningar. Við byrjum að upplifa nýja hluti sem geta fært okkur unað og vellíðan. Þá getur verið spennandi að kynnast líkamanum betur, kanna hvaða snerting er góð og leyfa sér að njóta þess sem þroskinn ber með sér. Kanna með eigin höndum hvaða tilfinningar þessi nýi líkami býður upp á. og eðlileg leið til að kynnast eigin líkama. Það er líka alveg eðlilegt að fróa sér ekki og bara ekkert að því. Það er auðvitað mjög einstaklingsbundið hversu mikla þörf og mikinn áhuga hver hefur á því að fróa sér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=