37 SPURT & SVARAD Blaðið fór á stúfana og tók Grím hjúkrunarfræðing tali á skólaganginum. Það kemur enginn að tómum kofanum hjá Grími, eins og sést á þessu viðtali. Blaðamaður: Sæll Grímur. Við erum að safna svörum við spurningum frá unglingum. Megum við spyrja þig nokkurra spurninga? Grímur: Alveg endilega. Spyrjið um hvað sem ykkur dettur í hug. Blaðamaður: Af hverju minnkar typpið á manni svona þegar manni verður kalt? Grímur: Hvað áttu við? Blaðamaður: Þú hlýtur að fatta hvað ég er að meina. Maður er kannski í sundi og það er kalt úti og maður hleypur inn til að pissa og þá er lilli bara – vá – fjórum fimm sinnum minni en maður hélt að hann væri. Grímur: Já, þú meinar það. Blaðamaður: Finnst þér þetta ekki furðulegt? Ekki minnkar hausinn á manni eða lappirnar þó að manni verði kalt. Grímur: Nei, en typpið er beinlaust og getur minnkað og stækkað. Blaðamaður: Já, og pungurinn dregst líka saman og verður harður eins og sveskja. Grímur: Einmitt. Veistu til hvers það er? Blaðamaður: Nei. Grímur: Sæðisfrumur eru viðkvæmar fyrir hitabreytingum og vöðvarnir í pungnum sjá um að draga eistun að heitum líkamanum eða slaka þeim niður svo að hitastigið sé nákvæmlega rétt fyrir sæðisframleiðsluna. Blaðamaður: Vá. Flott kerfi. Grímur: Pottþétt. Blaðamaður: Takk kærlega fyrir spjallið, Grímur. „Þegar ég vaknaði í morgun var eins og ég hefði pissað í rúmið. Það var einhver bleyta í náttbuxunum mínum og á sænginni. En þetta var ekki mjög mikið og þetta hefur aldrei áður komið fyrir mig. Er eitthvað að mér?“ SMÁRI Nei, Smári, það er sko ekkert að þér. Þarna hefur bara verið blautur draumur á ferðinni. Langflestir með typpi upplifa blauta drauma einhvern tíma í kringum kynþroskaskeiðið. Stundum er þetta ÓSJÁLFRÁTT SÁDLÁT - draumur í bókstaflegri merkingu, það er að segja mann dreymir eitthvað kynörvandi og fær einhvers konar fullnægingu eða sáðlát. Stundum fá strákar bara úr honum án þess að hafa dreymt neitt sérstakt. Þetta er sem sagt ekkert til að hafa áhyggjur af og eiginlega bara skemmtilegt þegar maður veit hvað er á ferðinni. Kynfræðingurinn - – GRÍMUR HJÚKRUNARFRÆDINGUR SITUR FYRIR SVÖRUM -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=