Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

36 „Ég er að spá í hvort maður geti haft einhver áhrif á stærðina – þú veist. Mér sýnist typpið stækka eitthvað aðeins við nudd og svoleiðis. Getur maður kannski haft einhver áhrif þegar vöxturinn er enn í gangi?“ RÚNAR Athyglisverð pæling hjá þér og ekki óeðlileg miðað við það hvað þau sem eru með typpi eru oft grátlega upptekin af typpastærð. Ég mæli ekki með neinni tilraunastarfsemi til að breyta typpinu þínu, allra síst á meðan þú ert enn að vaxa. Hins vegar skaltu óhikað veita typpinu alla þá athygli sem þér sýnist. Hlúa að því og gæla við það að vild, ef þér finnst það gott og skemmtilegt enda hefur stærðin engin áhrif á ánægjuna sem typpið getur veitt þér. Kynfræðingurinn „Typpið á mér er ekki nema 8 cm á lengd í fullri reisn. Er það ekki alltof lítið?“ NONNI Nei. Typpi eru af öllum stærðum og gerðum, lítil, stór, sver, mjó, bogin, bein, frammjó og afturmjó. Engin ein gerð eða stærð er betri eða verri en önnur. Samkvæmt rannsóknum getur lengd typpis í reisn verið mjög mismunandi, allt frá um 6 cm upp í um 17 cm. Það er því töluvert breitt stærðarbil. Kynfræðingurinn „Annað eistað á mér hangir neðar en hitt. Þarf ég að hafa áhyggjur af því?“ PALLI Alls ekki, Palli. Það er algengt að annar fóturinn á fólki sé aðeins lengri en hinn og það er jafnvel algengara að annað eistað sé stærra en hitt og þar af leiðandi þyngra og sígi því neðar. Þetta á aldrei eftir að há þér á nokkurn hátt. Kynfræðingurinn ORDAFORDI TYPPI Hefur þú heyrt þessi orð? Finnst þér þau falleg eða ljót? Þekkir þú fleiri orð sem ekki eru á listanum? Hvar hefurðu heyrt þau? TILLI BÖLLUR SKAUFI SKÖNDULL SKÖKULL BESEFI LIMUR VÖLSI PONNI LILLI KVIKINDI AULI BIBBI TITTLINGUR REDUR - GETNADARLIMUR - - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=