38 Já, það hefur gerst nokkrum sinnum en ég held að það hafi aldrei neinn tekið eftir því. Já, það gerðist einu sinni í strætó. Ég var ekki að hugsa neitt sérstakt, það bara gerðist allt í einu. Kannski var það hreyfingin á strætó sem olli þessu. MARÍON SPURNING DAGSINS: KÓNGUR KLÁR 776 f.Kr. í Grikklandi hinu forna voru íþróttir í hávegum hafðar og á 8. öld f.Kr. er talið að Grikkir hafi byrjað að keppa sín á milli á Ólympíuleikum. Þá kepptu aðeins karlmenn og allir keppendur voru allsberir. Hins vegar litu Grikkir svo á að kóngurinn fremst á typpinu væri heilagur og því var hann það eina af líkamanum sem áhorfendur máttu ekki sjá. Þess vegna drógu íþróttakapparnir forhúðina fram fyrir kónginn og bundu fyrir með bandspotta. Þessi spotti var sem sagt fyrsti íþróttagallinn. GAUI Já, svona getur alveg gerst, það kemur fyrir alla. Jú jú, ég fékk einu sinni rosa standara þegar við strákarnir vorum að horfa á mynd saman. Já, það var eitthvað æsandi að gerast í myndinni. Við hlógum að þessu og ég vissi líka að ég var ekkert sá eini sem lenti í þessu. BJÖSSI PÆLDU Í PVÍ Hvaðan koma skilaboð um að typpi eigi að vera stærri en þau eru? Eru það strákarnir í sturtunni? Eru það karlar í nærbuxnaauglýsingum sem eru gjarnan með upprúllaðan sokk í brókinni? Eru smokkarnir kannski of stórir? Eru allir að leita eftir stórum typpum? Hver hefur komið þessum efasemdum inn hjá fólki? Stærð kynfæra hefur yfirleitt mun minna að segja en margir halda. Mikilvægara er að kynnast eigin líkama og því hvað veitir vellíðan og ánægju. Það eru margar leiðir til að njóta nándar og kynferðislegra samskipta, til dæmis með snertingu, fingrum og munngælum. KAPPHLAUPID MIKLA Í einu sáðláti eru að meðaltali 40–300 milljón sæðisfrumur. Sem þýðir hvað? Jú, þú vannst kapphlaupið. Ef einhver af hinum 299.999.999 sæðisfrumunum hefði komist á leiðarenda værir þú ekki hér. Þú ert einstök manneskja, gerðu sem mest úr lífi þínu. SKIPTIR STÆRDIN MÁLI? HEFUR PÚ FENGID STANDPÍNU Á NEYDARLEGUM STAD? - - - - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=