Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

35 TYPPID Mér finnst typpið á mér æðislegt. Ég hef gaman af að skoða það og snerta það. Það eru alls konar góðar tilfinningar sem tengjast því, það er mjög næmt fyrir snertingu og örvast mjög auðveldlega – stundum er hreinlega eins og það sé sjálfstæður einstaklingur. Þegar það örvast stífnar það og verður jafnvel enn þá næmara fyrir snertingu og þá getur það veitt mér mikla vellíðan. Ég veit að þetta typpi er kannski ekkert einstakt en það þarf heldur ekkert að vera það og ég þori alveg að viðurkenna það – já, mér finnst typpið á mér flott og mér þykir bara ofsalega vænt um það. Það er partur af mér og það á eftir að fylgja mér alla ævi. Þess vegna er líka eins gott að við séum í góðu sambandi, ég og typpið. TYPPID MITT OG ÉG - HVAD ER GULLI AD PÆLA? - - PUNGUR Pokinn utan um eistun. FORHÚD Húðin utan um kónginn. Forhúðin er stundum skorin burt af læknisfræðilegum ástæðum eða vegna trúar og/eða hefða. Það kallast umskurður. Umskurðir án læknisfræðilegrar ástæðu, þ.e. þegar heilbrigð húð er skorin burt, eru ekki algengir á Íslandi, PVAGRÁS Leiðslan sem þvagið rennur eftir út úr typpinu. BLÖDRUHÁLSKIRTILL Þar sem stór hluti af sæðisvökvanum verður til. SÁDBLADRA Þar sem hluti af sæðisvökvanum verður til. LIMUR Það sem við köllum oftast typpi. PVAGBLADRA Þar sem þvagið safnast saman áður en líkaminn losar sig við það. SÁDRÁS Leiðslan sem sæðið rennur eftir úr pungnum yfir í typpið. EISTA Þar sem sæðisfrumur verða til, en líka karlhormónið testósterón. KÓNGUR Fremsti hluti typpis. EISTNALYPPA Þar sem sáðfrumur þroskast og geymast. INNRI OG YTRI KYNFÆRI - - - - - - - - OG NÆSTA NÁGRENNI

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=