Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

Sum ungmenni upplifa sig hvorki sem stráka né stelpur. Þau geta skilgreint sig sem stálp eða kynsegin. Félagsleg kynstaðfesting skiptir einnig miklu máli fyrir stálp. Það er mikilvægt að fólk virði nafn og fornöfn þeirra og ávarpi þau á þann hátt sem þau kjósa. Sum stálp nota kynhlutlaus fornöfn á borð við hán (sem beygist eins og lán!), hé eða hín, önnur nota hann eða hún. Það er alltaf best að spyrja ef þú ert óviss/t. Sum stálp eru með kvenlega kyntjáningu, sum með karlmannlega kyntjáningu, önnur með einhvers konar blöndu af hvoru tveggja, flakka á milli eða eru í allt öðru. Hvernig sem stálp tjá kyn sitt þá eru þau alltaf jafn mikið kynsegin. Fyrir sum stálp getur kynþroski verið erfiður og valdið þeim kynama, fyrir önnur hefur kynþroskinn ekki neikvæð áhrif. Það er mjög misjafnt hvernig upplifunin er og þá hvaða aðstoð og inngrip stálp þurfa á að halda. Sum þeirra kunna að vilja fá hormónablokkera til að koma í veg fyrir líkamlegar breytingar sem valda þeim kynama. Slíkt er í boði en til þess að komast í þannig meðferð þarf fyrst að eiga sér stað frumgreining, t.d. hjá sálfræðingi. Þegar þau verða síðan eldri gætu þau viljað svokallaða kynhormóna (sem eru þá krosshormónar miðað við úthlutað kyn) og jafnvel vilja einhverjar aðgerðir á borð við brjóstnám og þess háttar. Rétt eins og hjá öðrum kynjum þá er engin ein rétt leið til að vera kynsegin, allar leiðir eru jafn réttar. STÁLP 34

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=