Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

33 KYNSTADFESTING Ef trans karl fær krosshormón (í boði í fyrsta lagi frá 16 ára) mun líkaminn taka ýmsum breytingum, t.d. mun hárvöxtur aukast og röddin dýpka. Það eru síðan alls konar meðferðir, aðgerðir og líkamlegar breytingar sem standa trans körlum til boða, t.d. brjóstnám o.fl. Sumt af þessu er kostnaðarsamt. Svo er gott að hafa í huga að það vilja ekki allar trans karlar fara í þessar aðgerðir eða breytingar. Sumir vilja engar breytingar, sumir eru t.d. sáttir við sína píku en vilja bara brjóstnám og láta sér nægja breytingarnar sem krosshormónin hafa í för með sér. Það er engin ein rétt leið til að vera karl, hvort sem þú ert trans eða sís. Þetta ferli, ásamt allri biðinni getur verið ansi erfitt og getur þá verið mikilvægt að leita sér að ráðgjafa sem þekkir til trans málefna, finna stuðningshóp og jafnvel tala við aðrar sem hafa upplifað sömu stöðu. - HVAD ER ELVAR AD PÆLA? - - „Ég vissi eiginlega lengi að eitthvað passaði ekki alveg. Mér fannst skrýtið þegar fólk talaði um mig eins og stelpu og ég reyndi oft bara að láta það ekkert trufla mig. En það gerir það samt. Stundum velti ég því fyrir mér hvort fólk sjái mig eins og ég er eða bara eins og það býst við að ég sé. Ég hugsa líka um hvort ég eigi að leiðrétta fólk eða bara þegja til að forðast vesen. Mér finnst gott þegar einhver notar rétt nafn eða rétt fornöfn án þess að gera mikið mál úr því. Þá líður mér eins og ég geti bara verið ég sjálfur. Svo er ég auðvitað líka að pæla í alveg sömu hlutum og aðrir – hverjum ég er hrifinn af, hvernig ég lít út, hvort einhver fíli mig og hvort ég passi inn.“ ÉG ER AD PÆLA Í ALVEG SÖMU HLUTUM! -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=