TRANS Fyrir flest trans börn og ungmenni skiptir félagsleg kynstaðfesting miklu máli. Með því er átt við að þau fái að nota sitt rétta nafn og fornöfn og að fólk í kringum þau viðurkenni þau í réttu kyni, til dæmis foreldrar, systkini, vinir og kennarar. Margir trans strákar upplifa kynama en ekki allir. Kynami er djúpstæð vanlíðan sem tengist ýmist líkama þeirra og að hann sé ekki eins og þeir vilja en einnig getur kynami verið til staðar þegar stuðningur og viðurkenning annarra á þeirra kynvitund er ekki til staðar. Sumir trans strákar upplifa ekki að líkami þeirra sé „rangur“ eða þurfi að „leiðrétta“. Það er mikilvægt að muna að strákar geta verið alls konar og með alls konar líkama. Fyrir aðra geta þó breytingar sem fylgja kynþroska, eins og brjóstamyndun og blæðingar, verið erfiðar. Ef svo er þá getur skipt máli að fá hormónablokkera. Slíkt er í boði en til þess að komast í þannig meðferð þarf fyrst að eiga sér stað frumgreining, t.d. hjá sálfræðingi. Hormónablokkerarnir koma í veg fyrir eða stoppa það að líkaminn fari í gegnum kynþroska, þeir koma sem sagt í veg fyrir það að líkaminn fari í átt sem trans strákur vill ekki. Svo er einnig hægt að fá pilluna en hún kemur þá í veg fyrir blæðingar. Þetta er mörgum lífsnauðsynlegt. Á sama tíma og ýmislegt er stoppað er erfitt að líkaminn breytist ekki í þá átt sem trans strákur vill en á hormónablokkerum á í raun enginn kynþroski sér stað. Trans strákar þurfa að bíða eftir því að verða orðnir nógu gamlir Upplifun trans stráka af kynþroska og líkamsbreytingum getur verið mjög ólík. Það er mismunandi hvort þeir vilja gera líkamlegar breytingar eða ekki og hvað hentar hverjum og einum best. STRÁKUR/KARL (oftast 16 ára og eldri) til að fá svokallaða krosshormóna og geta þá tekið út kynþroska sem samsvarar þeirra kynvitund. Þetta er þó allt bundið því að trans strákar njóti stuðnings frá forsjáraðilum sínum og komist snemma í meðferð. Fyrir þá sem eru þegar byrjaðar á svokölluðum „kvenkyns kynþroska“ geta hormónablokkerarnir sett hann á pásu en breyta honum ekki til baka. Sumir trans strákar fá e.t.v. aldrei blokkera og fara í gegnum kynþroska sem veldur þeim miklum kynama. Það getur verið mjög erfitt tímabil. 32 ” STRÁKAR GETA VERID ALLS KONAR OG MED ALLS KONAR LÍKAMA.” - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=