Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

31 BREYTINGAR PUNGURINN … byrjar að þroskast og stækka á undan typpinu. pungurinn dökknar og verður lausari og krumpaðri þegar eistun þroskast. EISTUN … í pungnum eru tvö eistu ... þar myndast sæðisfrumurnar ... eistun eru mjög viðkvæm og oft ekki nákvæmlega jafn stór ... þau geta einnig hreyfst aðeins til í pungnum. SVITI ... guði sé lof fyrir svitaframleiðsluna … svitinn er til að kæla þig niður – bæði vegna líkamlegrar og andlegrar áreynslu, því annars myndir þú bara roðna og hitna og leggjast að lokum í rúmið með hita … á unglingsárunum er svolítil ofkeyrsla á svitastarfseminni – það er verið að stilla kerfið og prufukeyra það … Á LEIDINNI TYPPID … tekur við sér á eftir pungnum … lengist yfirleitt fyrst og þykknar svo. BLAUTIR DRAUMAR … eru þroskamerki … þá er sæðisframleiðslan komin í fullan gang og líkaminn prófar kerfið með því að framkalla sáðfall ... í svefni … blautir draumar tengjast ekkert endilega kynferðislegum draumförum. MÚTUR … verða þegar röddin dýpkar … en til þess þurfa raddböndin að lengjast og þykkna … það getur tekið raddböndin svolítinn tíma að stilla sig inn á réttu hljóðin og á meðan getur röddin sveiflast svolítið upp og niður eða brostið með tilheyrandi fölskum nótum … barkakýlið stækkar um leið og raddböndin þroskast … Einstaklingar með typpi verða kynþroska einhvern tíma á aldrinum 11 til 18 ára. Sumir þroskast fljótt og hratt, aðrir hægt og seint. SKIPTIR LYKTIN MÁLI? Margar dýrategundir treysta á lyktarskynið þegar einstaklingar velja sér maka. Þá geta dýr gefið frá sér ákveðna lykt sem vekur áhuga annarra á fengitíma. Lengi var talið að menn hefðu misst þennan hæfileika. Nýlegar rannsóknir benda þó til að líkamslykt geti haft áhrif á það hverjum finnst hver aðlaðandi. Þess vegna er ekki víst að ilmsápur, svitalyktareyðar og ilmvötn hjálpi alltaf til við að vekja áhuga. Stundum geta þau jafnvel falið lykt sem annars gæti haft áhrif. - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=