30 KYN ROSKI, Fyrsta vísbending um kynþroskann hjá þeim sem eru með typpi er gjarnan hárvöxtur eða stækkun á eistum. Sáðlát í svefni getur verið vísbending um kynþroskann en það getur líka átt sér stað löngu fyrr. Þegar hormónaframleiðslan er komin á fullt mæta yfirleitt skapsveiflurnar til leiks. Einnig má gera ráð fyrir að húðin fitni og bólur skjóti upp kollinum. Vaxtarverkir gera stundum vart við sig og geta verið skrambi óþægilegir. Þá er gott að skilja þau miklu átök sem eiga sér stað í skrokknum og hugsa með hlýhug til hormónanna. ... TIL GAGNS OG GAMANS TYPPI Typpið er magnað líffæri. Það veitir eiganda sínum gjarnan mikla gleði og sælu. Það kemur líka oft að góðum notum í ástarlífinu og er þá til ánægju og yndisauka ef svo ber undir. Typpið er þakið húð – forhúð – sem krumpast saman og myndar fellingar fremst á limnum. Það er eins og húðin sé laus utan á limnum og hana er hægt að hreyfa og teygja. Forhúðin nær yfir fremsta hluta limsins sem kallast kóngur. Kóngurinn er líkastur kylfuhaus en í hvíld fer lítið fyrir honum undir forhúðinni. Inni í typpinu eru hólf með svampkenndum vef. Við örvun streymir blóð þangað og veldur stinningu, eða standpínu eins og margir segja. Þá þenst limurinn út, lengist og stækkar. HÉR KEM ÉG! • með glansandi kóng • löng og mjó • sver og stutt • bogin eða bein Stefna stinningarinnar getur verið mismunandi – upp, fram eða niður – og það er allt eðlilegt. Í typpinu eru líka rásir fyrir þvag og sæði og fremst á limnum er þvagrásarop sem þjónar bæði þvaglátum og sæðislosun. • sveigð til hægri eða vinstri • með stóra eða þrönga forhúð Typpi eru, eins og aðrir líkamshlutar, mjög mismunandi að stærð, lögun og útliti. Þau geta til dæmis verið: • umskorin eða ekki Allt þetta er eðlilegt. Engin tvö typpi eru nákvæmlega eins. TYPPI ERU ÓLÍK
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=