29 RAKSTUR Ef þú velur að raka hárin af þarftu að passa að húðin sé hrein og nota hreina rakvél. Það er best að raka niður með hárum og nota milda raksápu/næringu. Gagnlegt getur verið að bera saman verð og eiginleika rakvara, þar sem sambærilegar vörur eru stundum markaðssettar á mismunandi hátt eftir kynjum. Rakvélar sem eru markaðssettar fyrir karlmenn eru oft ódýrari en eru samt ekkert síðri. Hár vaxa svo aftur - yfirleitt fyrr en síðar. HÁREYDINGARKREM Háreyðingarkrem innihalda sterk efni og geta ert viðkvæma húð, sérstaklega á kynfærum. Mikilvægt er að lesa leiðbeiningar vel og prófa efnið fyrst á litlu húðsvæði. Gott getur verið að leita ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki eða fullorðnum áður en slík efni eru notuð. KLIPPA Það má klippa til hárin á kynfærunum ef þér finnst þau of löng. Mikilvægt er að fara varlega og nota hrein skæri. VAX Þú getur keypt vax út í búð og vaxað hárin heima eða farið á snyrtistofu og látið fjarlægja hárin þar. Þá eru þau rifin upp með rótum – áááá! Svolítið sárt! Hárin vaxa aftur á 2 til 3 vikum. LEYSIGEISLAMEDFERD Leysigeislameðferð er kostnaðarsamari leið til að draga úr hárvexti. Þá er unnið á hársekknum svo hárvöxtur minnki eða hætti með tímanum. Oft þarf fleiri en eina meðferð til að ná árangri. - - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=