28 HREINLÆTI Ytri kynfæri þeirra sem eru með píku hreinsa sig að mestu leyti sjálf. Það er í lagi að skola skapabarmana með vatni, en píkan hefur ekki gott af sápu eða öðrum hreinsiefnum. Eðlileg útferð er hluti af varnarkerfi líkamans. Hún inniheldur gagnlegar bakteríur sem hjálpa til við að verja gegn sýkingum. Það þarf ekki að skola leggöngin — útferðin sér sjálf um að hreinsa og vernda … og allt er þetta sjálfvirkt frá náttúrunnar hendi. GRINDARBOTNSVÖDVARNIR Grindarbotnsvöðvar eru í hverjum einasta líkama, bæði hjá ungu og eldra fólki. Þeir liggja neðst í mjaðmagrindinni og styðja við líffæri á borð við þvagblöðru og endaþarm. Hjá þeim sem eru með leg styðja þeir einnig við legið. Hægt er að finna fyrir grindarbotnsvöðvunum þegar þú stoppar bununa þegar þú pissar. Það er þó ekki ráðlagt að æfa þá með því að stoppa þvaglát, heldur nota aðrar aðferðir til þjálfunar. Góð þjálfun grindarbotnsvöðva getur stutt við gott blóðflæði í kynfærum, aukið líkamsvitund og næmni, hjálpað til við að fyrirbyggja þvagleka og styrkt vöðvana til að minnka líkur á þvagleka og öðrum hrörnunarvandamálum seinna á ævinni. AF HVERJU? Ef þú ert að velta því fyrir þér hvort þú eigir að losa þig við hár af líkamanum skaltu skoða hug þinn vel og spyrja … Af hverju ætti ég að losa mig við þessi hár? Vil ég það í alvörunni? Finnst mér að ég þurfi að gera það fyrir aðra? Er þetta það sem ég vil gera? Ýmsar aðferðir eru notaðar til að fjarlægja hár t.d. af kynfærunum. Algengast er að raka hárin burt, nota háreyðingarkrem eða fara í vaxmeðferð. Þetta kostar allt tíma, peninga og vinnu. - HÁRVÖXTUR
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=