27 „Mér finnst brjóst ekkert stórmál. Sumir gera allt of mikið úr þessu með brjóstastærð og svoleiðis. Mér finnst brjóstin á mér bara flott og þykir vænt um þau og vil hafa þau eins og þau eru.“ HVAD ER SOLLA AD PÆLA? - - Brjóst eru til í öllum stærðum og gerðum. Þau eru að hluta til fituvefur, en stærð þeirra ræðst líka af erfðum og hormónum. Þess vegna er engin ein „rétt“ stærð eða lögun. Brjóst gegna nokkrum hlutverkum. Í mörgum tilfellum geta þau framleitt mjólk fyrir nýbura. Þau geta líka verið næm og gegnt hlutverki í kynferðislegri örvun. Þetta er þó mjög einstaklingsbundið. BRJÓST Eins og aðrir hlutar líkamans eru brjóst best eins og þau eru. Enginn hefur rétt á að gagnrýna þau eða segja að þau eigi að líta út á ákveðinn hátt. BRJÓST
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=