Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

26 TÍDASAFNID Þó að blæðingar séu feimnismál víða á Vesturlöndum hefur mörgum þótt ástæða til að blása á allt pukrið og pískrið í kringum þær. Eitt dæmi um það er Tíðasafnið sem starfrækt er í Washington D.C. Á Tíðasafninu er hægt að skoða nánast allt sem snertir tíðahringinn. Þar eru til sýnis margs konar gerðir af tíðabindum frá ýmsum tímum, þar má finna nákvæmar upplýsingar um allt sem snertir blæðingar og sögur og brandara sem tengjast þeim. Einna merkilegast er þar þó eflaust fjöldi listaverka sem unnin eru úr tíðablóði. Safnið segir okkur svo ekki verður um villst: Það er engin ástæða til að fela blæðingar. RAUDI LITURINN Í þjóðsögum og ævintýrum eru oft alls konar tákn sem erfitt er að skilja mörg hundruð árum eftir að sögurnar urðu til. Rauður litur táknar til dæmis oft tíðablóð í gömlum sögum eða kannski er réttara að segja að hann tákni kvenlegan styrk. Rauðklæddar konur í ævintýrum eru oft gæddar gífurlegum krafti og gáfum. Til dæmis er talið að sagan um Rauðhettu hafi þróast út frá annarri og miklu eldri sögu um rauðklædda konu sem át úlfinn og giftist síðar veiðimanninum – eða var það öfugt? Að minnsta kosti var hún sterk, gáfuð og frjósöm. Hafið þið tekið eftir orðalaginu í tíðabindaauglýsingunum? ÖRYGGISAUGLÝSINGAR Alveg ný öryggiskennd ... Óöryggið er úr sögunni með … Þú ert öruggari með … • Af hverju ætti óöryggi að fylgja blæðingum? • Má enginn vita af þeim? • Á eitthvað að „komast upp“? • Er ástæða til að skammast sín? • Af hverju er blóðið oft sýnt blátt í stað rauðs? - - - Auglýsingar geta ýtt undir hugmyndir okkar um hvað sé eðlilegt — og hvað eigi að fela. Blæðingar eru ekki leyndarmál. Þær eru líffræði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=