Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

25 TÍDABLÓD Tíðablóð er blanda af rauðum blóðkornum, legslími, frumum og efnahvötum. Tíðablóð getur verið þunnt og tært eða þykkt og kekkjótt. Liturinn getur verið allt frá brúnum eða dökkrauðum yfir í bleikan eða gulglæran. Það er mikilvægt að gæta alltaf hreinlætis, þvo hendur áður en skipt er um túrvöru, sérstaklega þegar notaðar eru túrvörur sem fara upp í leggöng. Gott er að skipta um bindi, tappa, bikar eða slíkt á a.m.k. 4 klukkustunda fresti, en það getur verið misjafnt eftir því hversu mikið tíðablóð kemur. Oftast er ekki um meira magn að ræða en rúmlega einn desilítra en það getur dreifst á marga daga. ”GET ÉG VITAD HVENÆR ÉG ER AD NÁLGAST EGGLOS?“ - - HULDA Það er algengt að það komi smá útferð sem er þykkari en þú átt að venjast þegar egglos á sér stað. Sumt fólk finnur fyrir seyðingi neðarlega í hryggnum eða vægum túrverkjum. Svo getur líka verið gagn af því að fylgjast með tíðahringnum. Þú þarft ekki annað en dagatal eða smáforrit til að skrá tímann. Þú merkir fyrsta daginn sem þú ert á túr og síðan hvern dag þar til blæðingin hættir. Þetta snýst ekki bara um að vita hvenær egglos verður, heldur almennt um að þekkja líkama sinn og starfsemi hans. Kynfræðingurinn ÓREGLULEGAR BLÆDINGAR Óreglulegar blæðingar eru algengar og eðlilegar fyrstu árin á blæðingum. Þá líður annaðhvort langt á milli og blæðingarnar geta orðið frekar miklar eða stutt á milli og þá verða þær oft minni. Ástæðan er sú að starfsemi eggjastokkanna er ekki orðin stöðug. Ef blæðingar eru enn óreglulegar 2-3 árum eftir að þær byrja er gott að leita til læknis. Talið er að um 20% einstaklinga sem fara á túr fái fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS). Blæðingar og tíðahringur fylgja ákveðinni hringrás. Sum kjósa að fylgjast með hringnum sínum til að skilja betur líkamann og breytingar sem geta orðið frá mánuði til mánaðar. Hlutfallsskipting hundrað einstaklingar: 48 eru í þrjá til fjóra daga 35 eru í 5 til 6 daga 13 eru í 7 daga eða meira - - HVE LENGI VARA BLÆDINGARNAR? Blæðingar vara oftast í 3–4 daga. Hjá sumum standa þær yfir í 7–8 daga en hjá öðrum eru þær styttri en 3 dagar. - - AD FYLGJAST MED TÍDAHRING - - - Það er hægt að skrá upplýsingar í dagbók eða forrit, til dæmis: - hvenær blæðingar hefjast - hvenær þeim lýkur - hversu miklar þær eru - hvort að það fylgi litlir eða miklir verkir eða önnur einkenni Að fylgjast með hringnum getur hjálpað til við að átta sig á mynstri líkamans.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=