24 TÍDABIKAR Tíðabikar er mjúkur margnota bikar úr silíkoni eða náttúrulegu gúmmíi, oft kallaður álfabikar eða mánabikar. Bikarinn er settur neðarlega inn í leggöng meðan blæðingar standa yfir og er notaður í stað binda og/eða túrtappa. Hann tekur allt að 30 ml af tíðablóði. Bikarinn þarf að tæma á fjögurra til tólf tíma fresti. TÚRNÆRBUXUR Túrnærbuxur líta alveg eins út og venjulegar nærbuxur en þær eru úr sérstöku efni sem getur tekið við miklu magni af vökva án þess að leka. Túrnærbuxur eru til í mörgum sniðum og með mismunandi mikilli rakadrægni. NÁTTÚRULEG OG UMHVERFISVÆN BINDI OG TAPPAR Margnota tappar og bindi búin til úr náttúruefnum njóta nú vaxandi vinsælda. Þau eru hönnuð til endurnotkunar og má þvo, samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda, oftast í þvottavél. Sum má einnig sjóða til sótthreinsunar. Þau eru til í mörgum stærðum og gerðum, með mismunandi sniði og festingum. Hvernig er tíðabikar notaður? Tíðabikarnum er komið fyrir í leggöngunum. Til að setja hann upp er hann brotinn saman, til dæmis þannig að barmarnir myndi U-lag. Þegar bikarinn er kominn inn opnast hann og myndar lokaða skál sem safnar blóðinu. Bikarinn þarf ekki að sitja jafn hátt og túrtappi. Mikilvægt er að hann opnist alveg, annars getur lekið meðfram honum. Það má tryggja með því að halda um neðri hluta bikarsins og snúa honum varlega. Tæma þarf bikarinn á 4–12 klukkustunda fresti, eftir því hversu mikil blæðingin er. Hann er tæmdur í salernið og skolaður með vatni áður en honum er komið aftur fyrir. - Til að taka bikarinn út má toga varlega í stilkinn neðan á honum eða grípa um botn bikarsins og losa hann.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=