Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

BLÆDINGAR – FRAMHALDSSAGA Í MÖRGUM BINDUM - PEGAR BLÓDID FLÆDIR Um það bil helmingur mannkyns fer að meðaltali 500 sinnum á túr á ævinni. Ýmsar vörur geta komið að góðu gagni þegar blóðið flæðir … Við kynnum einnota bindi, margnota taubindi og tappa, túrtappa, túrnærbuxur og tíðabikar. Hvaða bindi er best að nota? Eru túrtappar betri kostur? Hvað með margnota túrvörur? Hvað er tíðabikar? TÍDABINDI TAPPAR Túrtappar eru einn af valkostunum sem standa til boða þegar á blæðingum stendur. Þeir eru, líkt og bindi, til í mismunandi stærðum og útfærslum. Sum kjósa að nota tappa til dæmis í sundi eða hreyfingu, önnur ekki. Mikilvægast er að velja það sem hentar best og skipta reglulega um vöru. Tíðabindi hafa lengst af verið þarfasti þjónninn á meðan á blæðingum stendur. Þau eru til í margs konar útfærslum bæði að gerð, lögun, þykkt og efni. Framleiðendur nota stundum klórhreinsuð efni í tíðabindin eða plast-efni sem eru óþægileg fyrir húðina. Sum bindi eru óþarflega rakadræg en það getur valdið þurrki og sýkingum. Mælt er með að prófa nokkrar gerðir til að finna hvaða bindi henta best. Hvernig eru tappar notaðir? Sumar tegundir eru í sérstökum hólk sem auðveldar innsetningu. Þá er hólkurinn settur varlega inn í leggöng og tappanum ýtt á sinn stað. Aðrar tegundir eru án hólks. Þá er plastfilman fjarlægð og tappanum komið fyrir í leggöngunum með fingri. Hann er settur það langt inn að hann sitji þægilega. Leghálsinn lokar leginu og því er ekki hætta á að tappinn „týnist“ inn í líkamann. - - - - - 23

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=