22 SPURNING DAGSINS: „Það var í sumarbústaðarferð með frænku minni, sem er fjórum árum eldri en ég. Ég var 15 ára. Jú, mér brá svolítið en frænka mín vissi allt um þetta og hjálpaði mér.“ NÍNA „Ég var ekki nema 8 ára og þetta gerðist í frímínútum í skólanum. Ég hljóp ein inn á klósett og tókst svo að kalla á vinkonu mína, sem sótti kennarann. Kennarinn róaði mig og þetta varð ekkert stórmál.“ LINDA - HVAR OG HVENÆR BYRJADIR PÚ Á TÚR? - GUDJÓN „Ég byrjaði 12 ára á blæðingum sem var virkilega erfitt þar sem ég er strákur. Þetta truflaði mig rosalega, ég var farinn að kvíða því að byrja á túr og leið illa í hvert skipti. Mamma fór síðan með mig til læknis og ég fékk pilluna, þannig að nú fer ég ekki á túr. Svo vonast ég til að komast á hormónablokkera svo líkaminn breytist ekki meira í eitthvað sem ég vil ekki.“ „Sem betur fer var mamma búin að undirbúa mig vel, svo þegar ég vaknaði einn morguninn með rauðan blett í náttkjólnum mínum vissi ég nákvæmlega hvað var að gerast. Ég var 13 ára.“ HAFDÍS VID PROSKUMST HRADAR OG HRADAR OG HRADAR - - - - · Árið 1840 byrjuðu blæðingar að meðaltali 16,5 ára. · Árið 1990 byrjuðu blæðingar að meðaltali 12,8 ára. Hvenær er líklegt að næsta kynslóð byrji á túr?
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=