Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

21 - - Flest sem eru með leg og eggjastokka fæðast með mikinn fjölda af eggjum í eggjastokkunum eða um það bil 400.000. Þar af ná hugsanlega 4–500 egg að þroskast og komast inn í legið. EGG, EGG, EGG FÖRUNEYTI TÍDAHRINGURINN Hjá þeim sem eru með leg losnar egg úr eggjastokk um það bil einu sinni í mánuði. Á sama tíma þykknar slímhúðin í leginu og verður blóðrík til að taka við frjóvguðu eggi. Ef eggið frjóvgast ekki losnar slímhúðin og fer út úr líkamanum sem blæðingar. Þessa reglulegu hringrás líkamans köllum við tíðahring. Tíðahringurinn er að meðaltali um 28 dagar, talið frá fyrsta degi blæðinga að næstu blæðingum. Það er þó eðlilegt að hringurinn sé styttri eða lengri. Blæðingar standa oft yfir í 2–7 daga, stundum lengur. Blæðingin getur verið mismikil og jafnvel breyst frá degi til dags. Þegar henni lýkur getur komið brúnleit útferð á meðan síðustu blóðleifarnar fara úr líkamanum. Ef kynþroskinn væri brúðuleikhús, þá væri heiladingullinn örugglega leikhússtjórinn. Hann er oft kallaður yfirkirtill og það eru skipanir frá honum, öðru nafni hormón, sem stjórna þroska eggjanna í eggjastokkunum og segja líkamanum hvenær eggið eigi að leggja af stað inn í legið. Eiginlega gegnir heiladingullinn lykilhlutverki í öllum þeim breytingum sem verða á okkur á kynþroskaskeiðinu. Við eigum honum mikið að þakka. TÍDAHRING- LEIKHÚSID HRINGSINS TÍDAHRINGURINN Blæðing • Ný slímhúð • Egglos • Ferðalag eggsins • Eggið í leginu • Við frjóvgun eggs og sæðisfrumu getur orðið til nýr einstaklingur. Sum kjósa að eignast ekki börn og önnur glíma við ófrjósemi og þurfa að leita sér aðstoðar ef þau óska sér að eignast barn. - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=