Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

20 BLÆDINGAR Gott getur verið að kynna sér tíðavörur og undirbúa sig. Til eru mismunandi vörur og mikilvægt er að finna það sem hentar best. Mörg leita ráða hjá einhverjum sem þau treysta. Fyrstu blæðingar eru yfirleitt frekar litlar og minna á ljósrauða eða brúnleita útferð. Á öðrum degi getur blæðingin aukist og hjá sumum verður hún meiri. Þá getur þurft að skipta um bindi eða aðra vöru á 1–4 klukkustunda fresti meðan blæðingin er mest. Yfirleitt dregur síðan úr henni á næstu dögum. RÁD UNDIR RIFI HVERJU Það eru til ýmis ráð til að létta á verkjunum ef þeir eru slæmir. Öll hreyfing er til bóta. Hitapoki eða heitt bað eða sturta geta hjálpað til við að slaka á. Óhætt er að taka væg verkjalyf. Mikilvægt er að gæta hreinlætis meðan á blæðingum stendur. AD SKILJA BLÆDINGAR Það getur verið gagnlegt að fræðast um blæðingar, bæði fyrir þau sem fá þær og þau sem vilja skilja hvað aðrir ganga í gegnum. Er þetta sárt? Er munur á milli daga? Hvenær blæðir mest? Hve lengi? Hvað er hægt að gera til að létta sér lífið? Nota þau bindi, tappa, túrbuxur eða tíðabikar? PEGAR VERKIR VERDA MIKLIR Túrverkir geta verið hvimleiðir en þeir eru oftast eðlilegur fylgikvilli blæðinga. „Ég er mikið að pæla í kynþroskanum. Af hverju verðum við kynþroska svona snemma? Við byrjum á túr og líkaminn er oft tilbúinn til að byrja að ganga með barn, en að öðru leyti erum við alls ekki undir það búin að verða foreldrar. Af hverju er líkaminn stundum langt á undan viti og tilfinningum í þroska? Er það ekki svolítið sérstakt? Hvað er náttúran að hugsa? “ HVAD ER BRYNDÍS AD PÆLA? - - TILBÚIN - EKKI TILBÚIN? - - - - Sum glíma við bólgusjúkdóminn endómetríósa, oftast kallaður endó og veldur hann oft miklum verkjum. Ef verkir verða svo miklir að þeir hindra daglegt líf getur verið nauðsynlegt að leita til læknis. Mjög misjafnt er hvenær blæðingar hefjast. Þær geta hafist um 8 ára aldur eða mun seinna, allt að 18 ára og allt þar á milli er eðlilegt. Þegar blæðingar hefjast getur það gerst án mikils fyrirvara. Fyrstu merkin eru oft smá útferð, blóð eða brúnleitur blettur í nærfötum eða á klósettpappír. TÚRVERKIR Blæðingar geta valdið verkjum. Verkirnir eru vegna kröftugra samdrátta í leginu. Samdrættirnir eru missterkir og valda m.a. þess vegna litlum seyðingi hjá sumum en sárum verkjum hjá öðrum. AD BYRJA Á TÚR - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=