Kynlíf - ungt fólk - líkami - kynþroski - samskipti - mörk

11 HEILANUM Í heilanum er uppspretta boðefna sem valda vellíðan (endorfín, serótónín o.fl.). Þau losna úr læðingi þegar við upplifum eitthvað einstakt, dásamlegt og frábært. Við finnum fyrir þeim þegar við hlæjum, þegar við upplifum ást og væntumþykju, þegar við finnum líkamlega ánægju, hlustum á tónlist sem snertir okkur eða sjáum eitthvað sem okkur þykir stórbrotið. Við getum haft áhrif á líðan okkar með því að hlæja, dansa, syngja, leika okkur, knúsa þau sem okkur þykir vænt um, gleðja einhvern, finna hlýjuna í hjartanu, þakka fyrir allt sem er gott í lífi okkar – þannig virkjum við sæluuppsprettuna. Vímuefni geta skemmt þessa sæluuppsprettu okkar. Ef eiturlyfja er neytt leysa þau þessi boðefni af hólmi og um leið missir heilinn hæfileikann til að framleiða þau sjálfkrafa. Þar með stendur ekkert eftir nema depurð og þunglyndi sem veldur því að sum sjá bara svartnætti framundan af því að það vantar sæluhormón í líkamann. Í SÆLUEFNIN Tilfinningarnar eru rosalega stór partur af tilverunni og þær segja þér hvernig þér líður. Þú getur valið að berjast við þær ... eða að slaka á og hlusta á hvað þær segja þér. Auðvitað geta tilfinningarnar verið erfiðar – en erfiðustu sveiflurnar líða yfirleitt fljótt hjá. Mundu það næst þegar þér finnst allt vonlaust (litli bróðir þinn er skrímsli og þú ert í bekk með eintómum heilalausum einfrumungum), að þér á eftir að líða betur eftir svona einn til tvo tíma. Það besta sem þú getur gert er bara að skoða tilfinningarnar og reyna að skilja hvað þær vilja þér. Væri það ekki óspennandi ef allir höguðu sér eins og forrituð vélmenni? Má ég heldur biðja um gleði og sorg, reiði og fögnuð, vonbrigði og hrifningu. Og sveiflan þarf að fara í báðar áttir – upp og niður – eins og Bangsímon sagði „ef það er leiðinlegt núna, þá gerist bráðum eitthvað skemmtilegt“. ALEX SVARAR SPURNINGUM HVERNIG GET ÉG RÁDID VID PESSAR OFBODSLEGU TILFINNINGASVEIFLUR? - - - - EKKI ER ALLT SEM SÝNIST! Vitsmunalífið þroskast líka hratt á unglingsárunum. Sumir unglingar verða mjög gagnrýnir á allt og alla og pirra sig á öllu ruglinu í kringum sig. Aðrir unglingar bregða á það ráð að fara inn í herbergi og berja og öskra í stóran púða til að fá útrás fyrir pirring. Þau læra líka smátt og smátt að þau hafa ekki endilega alltaf rétt fyrir sér um allt – ekkert frekar en þau hafa rangt fyrir sér um allt. Önnur sjá stundum hlutina í allt öðru ljósi og – já, það er ekki allt sem sýnist. Það er líka spennandi pæling. PÆLING HVAD EF ...? EN AKKÚRAT ÖFUGT? GETUR VERID AD ... ? HUGSUN - - -

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=