12 Það er ekki mikill munur á kynferðislegum viðbrögðum kynja ... en líkamar okkar eru ólíkir. Við kynferðislega örvun eykst blóðflæðið til kynfæranna. Hjá þeim sem eru með píku geta geirvörtur orðið stífari, snípurinn þrútnað og aukin bleyta myndast í leggöngum. Hjá þeim sem eru með typpi getur limurinn stækkað og stífnað þegar blóð þrýstist inn í svampkenndan vef hans. Kynferðisleg viðbrögð eru mismunandi milli einstaklinga. Sum finna sterka líkamlega vellíðan, önnur minna. Hver líkami er einstakur og bregst við á sinn hátt. Það að vita hvað þú vilt og vilt ekki er mikilvægt fyrir líðan þína. Þegar kemur að kynlífi er mikilvægt að þekkja sig og sín mörk og vita að aðrir hafa aðrar þarfir og önnur mörk. Við viljum forðast að brjóta á okkur sjálfum og öðrum. Þess vegna eigum við alltaf að virða eigin mörk og mörk annarra. Mörk okkar geta verið ólík mörkum annarra, þ.e. að það sem okkur finnst í lagi, bæði í kynlífi og öllum öðrum samskiptum, gæti öðrum ekki þótt í lagi. Við sleppum öllu sem getur verið meiðandi gagnvart okkur sjálfum eða öðrum. Það að halda áfram að snerta aðra manneskju þrátt fyrir að viðkomandi vilji það ekki er dæmi um hegðun sem virðir ekki mörk annarra. Það getur samt vafist fyrir okkur að vita hvernig okkur líður og hvað okkur langar að gera. Stundum viljum við geðjast öðrum og eigum þá á hættu að misbjóða sjálfum okkur. Þá er um að gera að staldra við, anda djúpt og hlusta inn á við á sig sjálf og ræða málin. Samþykki verður að vera óþvingað og það má skipta um skoðun og segja stopp hvenær sem er. Besta leiðin til að tryggja að öllum líði vel eru samskipti, að tala saman um hlutina, hvað okkur finnst gott, vont, spennandi eða hræðir okkur. Það er mikilvægt að átta sig á muninum á þeim sem eru með heilbrigða sjálfsmynd og bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og hinum sem eru með brotna sjálfsmynd og sýna öðrum yfirgang og dónaskap. Hvert og eitt okkar ræður yfir sínum líkama. Samfélagið setur líka mörk til að vernda fólk gagnvart þeim sem fara ekki eftir reglunum og t.d. tæla, virða ekki aldursmörk, þvinga eða beita hvers kyns ofbeldi. KYNHVÖTIN er skemmtilegt fyrirbæri. Hún stýrir því hvað höfðar til þín kynferðislega. Á unglingsárunum verður kynhvötin stundum villt og frek. En það er eins með kynhvötina og tilfinningarnar … það þýðir ekkert að loka hana inni og reyna að taka ekki eftir henni. Þú ættir frekar að fagna henni og reyna að kynnast henni vel og skoða svo hvert hún vill leiða þig. HVAD ER EDLILEGT OG HVAD ER ÓEDLILEGT? Við veltum því öll fyrir okkur hvort við séum eðlileg og flest efumst við einhvern tíma um að svo sé. Það er nú líka svolítið erfitt að vera eðlileg þegar við þekkjum ekki alveg reglurnar og vitum ekki einu sinni hver bjó þær til. Þó hugtakið vísi til eðlis mannsins eru hugmyndir um hvað telst eðlilegt í raun mótaðar af samfélaginu. Þær eru mismunandi eftir tíma, menningu og hvar við erum staðsett á hnettinum. - - - - MÖRK OG SAM YKKI KYNFERDISLEG - VIDBRÖGD- - Ofbeldi er aldrei leyfilegt, hvorki líkamlegt, andlegt eða stafrænt.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=