10 Lítum nú aðeins á það sem gerist í tilfinningalífinu á kynþroskaskeiðinu. Þú kannast eflaust við skapsveiflurnar. Eina stundina stendur þú í stafni á stærsta farþegaskipi heims og öskrar út yfir hafið: Ég er ÆÐI. Hálftíma seinna er skipið sokkið og þú svamlandi í ísköldum sjónum og átt ekki nema örfáar mínútur eftir. Og allt er þetta kannski einni bólu að kenna sem skaut upp kollinum á nefinu á þér og breyttist á nokkrum mínútum í risavaxinn ísjaka sem sökkti skipinu. En finnst þér samt ekki æðislegt þegar hjartað bráðnar við að sjá eða heyra eitthvað sem höfðar til þín? Og kannastu kannski við hlátursköstin sem vekja sæluefnin í heilanum? ÉG ER Æ-DI! TILFINNINGALÍFIDPIRRINGSLOSUN „Ég hlýt að vera svona rússíbanatýpa. Ég var svo ótrúlega pirrað í morgun – það var allt í „messi“ heima – ekkert tannkrem til, öll handklæðin skítug og bróðir minn kláraði mjólkina áður en ég gat fengið mér morgunkorn. Mig langar að berja hann – en það má ekki ... eða öskra og stappa – en það myndi ekki gleðja fólkið á neðri hæðinni. En pirringurinn er fastur inni í mér – eins og harður köggull ... ótrúlega óþægilegt. Svo ég ákvað að reyna aðferðina sem ég lærði í núvitundartíma – ég blés öllu HVAD ER REGN AD PÆLA? - - lofti frá mér, andaði djúpt og hægt niður í maga og hristi svo pirringinn af mér þegar ég andaði út. Ég þurfti reyndar að gera þetta þrisvar sinnum og þá var ég orðið nokkuð rólegt aftur ... allavega langaði mig ekki lengur að lemja bróður minn. Og þegar hann sagði mér að hann fengi að vita í dag hvort hann fengi að fara á skíðalandsmótið og ég fann hvað hann var spenntur þá vildi ég allt fyrir hann gera. Síðan greip ég epli og labbaði brosandi af stað í skólann. Ég kom við hjá Herdísi vinkonu en hún var ekki tilbúin og við alveg að verða of sein ... svo ég ákvað að vera hreinskilið frekar en pirrað og sagðist labba áfram – hún gæti náð mér ef hún drifi sig. Herdís kom aðeins of seint og var rosalega pirruð ... svo fór hún að böggast í mér – svo ég spurði hvað ég hefði gert henni ... og þá spurði hún: „Af hverju fórstu á undan mér?“ „Af því þú varst ekki tilbúin og ég ætlaði ekki að verða of seint í skólann,“ sagði ég. „Já, en ég gat ekkert að því gert – ég vaknaði of seint,“ sagði Herdís og var enn mjög pirruð út í allt og alla. „Já, en átti ég að vera seint út af því?“ spurði ég þá. „Ohhhhh ... hvað ég er pirruð – ég er örugglega komin niður í 7 í mætingu,“ sagði Herdís og mér sýndist slakna aðeins á henni. „Þú ert þá fúl út í mætinguna en ekki mig,“ sagði ég.“ – HVERNIG MÁ LOSNA VID PIRRING? ADFERD NÚVITUNDARKENNARANS 1. Andaðu öllu lofti frá þér. 2. Andaðu hægt að þér og fylltu magann og brjóstkassann af lofti. 3. Andaðu frá þér og hristu pirringinn út með loftinu. – Sjáðu fyrir þér hvernig pirringurinn losnar úr maganum og svífur út úr þér með loftinu og burt frá þér. Endurtaktu þrisvar sinnum eða oftar eftir því hve pirringurinn er mikill. Prófaðu að finna loftið fara inn um nefið … hvernig það strýkst við nefbroddinn, hvernig það er kalt og þurrt eða hvernig nasavængirnir þenjast út. - - -
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=