9 „Ég er svo vandræðaleg. Ég þoli ekki hvað ég roðna bara ef einhver lítur á mig. Í gær kom Sævar og spurði mig út í íslenskuprófið og ég fraus bara og byrjaði að bulla eitthvað um að ég kynni ekkert. Hvað er að mér? Ugh. Hann heldur pottþétt að ég sé algjört fífl og talar örugglega aldrei við mig aftur." HVAD ER ÍRIS AD PÆLA? - - HORMÓNIN ERU AD TRUFLA MIG! - TILFINNINGALÍFID ER Í TÍVOLÍ TÍVOLÍ MIKILLI SVEIFLU Það getur verið öruggara og minna stressandi að dóla bara hring eftir hring heldur en að þeytast upp og niður með magann ýmist uppi í koki eða niðri í klofi. Hvort finnst þér skemmtilegra í rússíbanananum eða hringekjunni? Kannski finnst þér ekkert gaman í tívolí og vilt bara hafa fast land undir fótum. Þú finnur meiri tilfinningasveiflur en áður og það getur orðið stutt milli hláturs og gráturs. En það að taka dýfur af og til er bara liður í að þroskast tilfinningalega. Dýfurnar geta verið krefjandi – en þær gera gleðistundirnar líka sterkari. - ÉG ER ÓGEDSLEGA PIRRUD OG REID! - - - Tilfinningalífið verður að rússíbana á unglingsárunum. Sumum finnst það gaman en önnur hefðu frekar valið hringekjuna.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=